Fara í efni

Nýr Honda HR-V frumsýndur hjá Öskju

Fréttir

Askja umboðsaðili Honda á Íslandi frumsýnir á laugardaginn 26. mars nýjan Honda HR-V Hybrid í Honda salnum á Krókhálsi.

Sýningin fer fram á milli klukkan 12 - 16. Nýr Honda HRV er með háþróað Hybrid kerfi sem gerir hann sérlega sparneytinn og hagkvæman valkost.

Nýr Honda HR-V er með 1,5 lítra Hybrid vél sem skilar 131 hestöflum og 253 Nm í togi. Tvinnvélin skilar minna kolefnisspori en áður eða 122 g/km. Hægt er að velja um þrjár mismunandi akstursstillingar, Sport, Normal eða Eco. Viðbragðsþýð aflrásin í HR-V hentar vel við allar aðstæður jafnt í innanbæjarakstri eða á þjóðvegum. Sjálfhlaðandi tvinnvélin skilar umhverfisvænni akstri og dregur úr eldsneytiseyðslu.

Honda HR-V Hybrid er hlaðinn kostum. Hann er sparneytinn og hagkvæmur en í hönnun og staðalbúnaði er hvergi til sparað. Aðgengi er framúrskarandi gott og þar leikur nítján sentimetra veghæð bílsins stórt hlutverk. Bíllinn er rúmgóður að innan bæði fyrir fólk og farangur og mun rúmbetri en fyrri gerðir HRV. Hægt er að leggja Magic aftursætin niður mjög auðveldlega og auka þannig enn frekar á farangursrýmið ef þörf er á. Bíllinn er vel búinn staðalbúnaði og hönnun á innra rýminu er fáguð og vandað efnisval. Honda HR-V Hybrid kemur með fimm ára ábyrgð og innifalin er regluleg þjónusta í þrjú ár.

Ný Honda mótorhjól sýnd

Samhliða frumsýningu á HR-V hybrid mun Bílaumboðið Askja sýna ný Honda mótorhjól og hefja með því formlega hjólasumarið 2022 á laugardaginn kl 12-16 í sýningarsal Honda, Krókhálsi 13. Fyrstu Honda mótorhjólin voru flutt inn af Honda umboðinu árið 1969 og hafa skipað stóran sess í hjörtum mótorhjólafólks allt frá upphafi. Honda mótorhjólin eru þekkt fyrir gæði, áreiðanleika, fallega hönnun og fjölbreytt notagildi en ekki síst fyrir þá ánægju sem þau veita notendum. Sala og þjónusta Honda mótorhjóla er á Krókhálsi 13.