Fara í efni

Nú klárar þú sveinsprófið!

Fréttir

Ertu 23 ára eða eldri og með þriggja ára starfsreynslu í iðngrein?

Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi að loknu matinu.

Áformað er að raunfærnimat fari fram í eftirfarandi iðn- og starfsgreinum vorið 2018:

húsasmíði og múraraiðn

bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamálun

matreiðsla og matartækni

netagerð

skrúðgarðyrkja

Inntökuskilyrði í raunfærnimat: 

23 ára aldur og 3 ára reynsla úr viðkomandi grein, miðað við fullt starf (staðfest með opinberum gögnum t.d. lífeyrissjóðsyfirlitum)

Nánari upplýsingar um raunfærnimat má finna á vef IÐUNNAR fræðsluseturs www.idan.is/raunfaernimat eða í síma 590 6400.