Fara í efni

MITSUBISHI BÝÐUR TIL 100 ÁRA AFMÆLISVEISLU!

Fréttir

Mitsubishi fagnar aldarafmæli og býður til veislu laugardaginn 28. október frá 12.00 til 16.00.

Mikið hefur verið um að vera á árinu í tilefni aldarafmælisins og Mitsubishi hefur boðið upp á sérstakt afmælistilboð á öllum nýjum bílum. Það er óhætt að segja að það uppátæki hafi slegið í gegn hjá íslensku þjóðinni og væntingar hafa farið fram úr björtustu vonum. Þannig hafa 390 Mitsubishi Outlander PHEV selst það sem af er árs og Sport útfærslan seldist hreinlega upp. Í staðinn hafa bæst við tvær útfærslur af þessum umhverfisvæna tengiltvinnbíl; Outlander PHEV Invite og Invite +.

Mitsubishi Motors var stofnað í Japan árið 1917 og það ár kom Mitsubishi Model A á markað en hann var fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn í Japan og lagði grunninn að farsæld næstu 100 ára. Það má með sanni segja að aldarlöng saga Mitsubishi sé saga nýsköpunar. Í fimmtíu ár hefur fyrirtækið unnið að þróun rafbíla og Mitsubishi var fyrsti bílaframleiðandinn til að fjöldaframleiða þá. Rannsóknar- og þróunarvinnan hófst árið 1966 og leiddi af sér rafbílinn Mitsubishi i-MiEV sem kom á fyrirtækjamarkað í Japan árið 2009 og á almennan markað ári síðar. Þremur árum síðar var Outlander PHEV, sem gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni, frumsýndur en hann var fyrsti tengiltvinnbíllinn í jeppaútfærslu. Outlander PHEV hefur eins og fyrr segir unnið hug og hjörtu Íslendinga og er mesti seldi tengiltvinnbíllinn á landinu, bæði í ár og 2016.

Íslendingar kynntust Mitsubishi þegar innflutningur hófst árið 1973 og síðan þá hafa bílar á borð við smábílinn Mitsubishi Colt, keppnisjeppann Mitsubishi Pajero og fólksbílana Mitsubishi Lancer og Galant gert garðinn frægan. Tíðar heimsóknir í sýningarsal Mitsubishi í ár bera vitni um vinsældir japanska bílaframleiðandans.

Afmælisveislan verður haldin í sýningarsal Mitsubishi við Laugaveginn þar sem við ætlum að gera okkur glaðan dag,“ segir María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. „Við munum bjóða upp á heljarinnar afmælistertu, kaffi frá Kaffitár og andlitsmálningu fyrir börnin og vonumst til að sjá sem flesta.“