Fara í efni

Mitsubishi á fleygiferð fyrstu sex mánuði ársins

Fréttir

Mitsubishi er það bílavörumerki á Íslandi sem vaxið hefur hraðast fyrstu sex mánuði ársins 2018 samanborið við sama tímabil í fyrra. Salan á þessum frábæru japönsku bílum sem Íslendingar hafa haldið tryggð við um áratugaskeið hefur tvöfaldast milli ára og er það nærri tvöfalt meiri aukning en á þeirri bílategund sem næst kemur. Raunar er það svo að fyrstu sex mánuði ársins eru tvö vörumerki frá Heklu á topp þremur yfir mest seldu bílategundirnar á einstaklingsmarkaði, Mitsubishi og Volkswagen, og Hekla er það bílaumboð sem selt hefur næst flesta bíla á þeim markaði.

Þegar þegar kemur að vistvænum bílum kemst ekkert umboð með tærnar þar sem Hekla hefur hælana en tæplega 60% allra vistvænna bíla sem selst hafa fyrstu sex mánuði ársins koma frá Heklu og bera Mitsubishi og Volkswagen höfuð og herðar yfir aðrar tegundir þegar kemur að tengiltvinnbílum. Mitsubishi Outlander trónir þar á toppnum og Volkwagen Golf er í öðru sæti.

Hekla heldur því áfram að vera leiðandi þegar kemur að sölu vistvænna bíla og þessar tölur endurspegla glögglega græna afstöðu fyrirtækisins í umferðinni.