Fara í efni

Met í sölu hús­bíla í Svíþjóð

Fréttir

Frétt af mbl.is

Aldrei hafa verið jafn marg­ir hús­bíl­ar skráðir í Svíþjóð og nú. Alls eru 87 þúsund hús­bíl­ar skráðir í land­inu og ný­skráðum hef­ur fjölgað um 22% milli ára. Í Svíþjóð er mesta fjölg­un hús­bíla í lönd­um inn­an Evr­ópu, seg­ir Tom­as Hag­lund við Aft­on­bla­det

Hann seg­ir aukn­ing­una hreint út sagt ótrú­lega. Hann bend­ir á að marg­ar fjöl­skyld­ur kjósi að fjár­festa í hús­bíl svo þær geti ferðast um landið sam­an í stað þess að eiga sum­ar­hús. Hann seg­ir jafn­framt að bíl­arn­ir séu eins mis­jafn­ir og þeir eru marg­ir og verðbilið og lúx­us­inn ólík­ur.

http://www.mbl.is/bill/frettir/2017/04/21/met_i_solu_husbila_i_svithjod/