Á þessu ári hefur Bílaumboðið Askja afhent 1.350 nýjar Kia bifreiðar sem eru fleiri en allt árið í fyrra þegar 1.348 KIA bílar voru afhentir. Þetta er metsala í Kia bifreiðum á Íslandi en á hvergi í Evrópu er markaðshlutdeild Kia eins há og hér á landi.
,,Bílasala hefur aukist umtalsvert á árinu en við eigum enn talsvert inni. Einstaklingar eru ekki komnir af stað af sama krafti og var t.d. árin 2005-2007," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju. Kia hefur verið að koma með nýja og spennandi bíla m.a. nýjan Sportage og hinn nýja Niro, sem Askja kynnti í byrjun september. Auk þess eru væntanlegir þrír nýir Kia bílar á næstu sex mánuðum. Kia er þriðja mest selda merkið á Íslandi það sem af er ári, á eftir Volkswagen og Toyota. Kia Sportage var mest seldi bíllinn á Íslandi í ágúst sl.