Fara í efni

Mercedes-EQ kynnir EQS SUV sportjeppann

Fréttir

Mercedes-EQ hefur kynnt til leiks glæsilegan rafknúinn EQS SUV sportjeppa sem hefur allt að 660 km drægni. EQS SUV sportjeppinn endurskilgreinir lúxus með einstakri hönnun og innanrými fyrir allt að sjö manns. Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið sem gerir aksturseiginleika hans einstaka og mikið innanrými. EQS SUV sportjeppinn hefur góða veghæð, búinn loftpúðafjöðrun sem skilar sér í framúrskarandi akstursgetu bæði á malbiki sem og í torfærum.

EQS SUV sportjeppinn er hlaðinn lúxus og tækni í innanrýminu. Bíllinn er fáanlegur með hinum hátæknivædda Hyperscreen, líkt og í EQS lúxusfólksbíllinn. Hyperscreen er háskerpuskjár sem teygir anga sýna yfir allt mælaborðið enda 55” með einu samfelldu bogadregnu gleri. Innréttingin er líka að mestu leyti sú sama og í EQS sem og afþreyingarpakkinn sem samanstendur m.a. af tveimur 11,6 tommu skjám fyrir farþega í aftursætum. EQS SUV verður búinn hinum þekkta 4MATIC fjórhjóladrifi og við það verður hægt að velja mismunandi aflútfærslur en sú aflmesta er EQS 580 4MATIC en hún er 545 hestöfl með 858 Nm tog sem skilar bílnum 0-100 á einungis 4,7 sekúndum

EQS SUV verður fáanlegur með allt að 22kW, þriggja fasa hleðslugetu sem hleður bílinn frá 0-100% á 5,5 klukkustund. Hraðhleðslugeta bílsins verður 200kW sem þýðir að hægt verður að ná 300 km drægni á aðeins 15 mínútum og hlaða bílinn 10-80% á u.þ.b. 30 mínútum.

EQS SUV sportjeppinn er fyrir frumkvöðla sem gera kröfur um rafknúinn munað.