Fara í efni

Mercedes-Benz S og G bílar ársins hjá Auto Motor und Sport

Fréttir

Hið víðlesna bílatímarit Auto Motor und Sport hefur um margra ára skeið staðið fyrir vali á bíl ársins. Að þessu sinni tóku 115.285 lesendur þátt í valinu. Mercedes-Benz S hefur löngum verið órjúfanlega tengdur tækninýjungum og ríkulegum útbúnaði. 

Hann státar af snjöllum öryggisbúnaði, þar á meðal getur hann með upp að vissu marki fylgt með sjálfvirkum hætti eftir bílum sem á undan fara í umferðarhnútum. Annar hápunktur bílsins er svokallað MAGIC BODY fjöðrunarstýrikerfi, sem gerir Mercedes-Benz S fyrsta bílinn í heimi sem greinir ójöfnur í veginum framundan og lagar fjöðrunarkerfið að þeim áður en ekið er yfir þær. Með þessari tækni er hugtakið „akstursþægindi“ í raun endurskilgreint. 

Mercedes Benz G er fyrir löngu orðinn klassískur jeppi. En velgengni hans virðist engan endi ætla að taka. G-línan lagði grunninn að jeppafjölskyldu Mercedes-Benz strax árið 1979. Síðan hefur G-línan tekið stöðugum breytingum og betrumbótum. Núna hefur þessi klassíski unglingur öðlast goðsagnakennda stöðu á meðal jeppaáhugamanna heimsins. Hann hefur stöðugt verið uppfærður með nýjustu hátækni og hágæðabúnaði og innréttingum og hefur þess vegna án vandkvæða varið stöðu sína sem draumajeppinn segir í frétt á visi.is