Fara í efni

Mercedes-Benz í hringferð um landið

Fréttir

Mercedes-Benz heldur í hringferð um landið í maí og mun kynna úrval fólks- og atvinnubíla frá þýska lúxusbílaframleiðandanum á landsbyggðinni.

,,Við gerum víðreist í maí og bjóðum íbúum á landsbyggðinni að kynnast fjölbreyttum flota fólks- og atvinnubíla Mercedes-Benz. Til sýnis verða m.a. 35" breyttur X-Class, jepparnir GLS, GLE, GLC og GLA, auk hins sportlega CLA. Þá verðum við með V-Class og hinn dugmikla Vito atvinnubíl, sem báðir eru fjórhjóladrifnir. Þannig að þetta er nokkuð fjölbreytt flóra sem við ætlum að fara með um landið," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla hjá Bílaumboðinu Öskju.

Hringferðin hefst á Akranesi 1. maí þar sem Mercedes-Benz bílar verða kynntir hjá Bílás. Í framhaldinu verða kynningar á Grundarfirði, Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn og hringferðin endar síðan á Selfossi 12. maí.  Boðið verður uppá reynsluakstur á öllum stöðum.

Mercedes-Benz kynningarnar verða á eftirtöldum stöðum á landinu þessa daga frá kl. 12-16.

1. maí: Akranes, Bílás bílasala

2. maí: Grundarfjörður, við Kjörbúðina

3. maí: Sauðárkrókur, Bílaverkstæði KS

5. maí: Akureyri, Höldur bílasala

9. maí: Egilsstaðir, Bílaverkstæði Austurlands 10. maí: Höfn, N1 12. maí: Selfoss , Bílasala Selfoss