Sportjeppinn Mercedes-Benz GLE Coupe er væntanlegur í haust með mörgum spennandi vélum. Öflugasta útfærslan er 63 AMG og þá kemur sportjeppinn einnig sem 450 AMG sem er frábær nýr valkostur. Auk þess verður GLE Coupe í boði sem 350d og þá með 260 hestafla díselvél.
Nýr GLE Coupe er sterklegur ásýndum og með aðlaðandi formlínum. Auk þess er mikil breidd í búnaðinum sem getur fylgt með honum og mikið afl undir vélarhúddinu.
63 AMG útfærslan er með 5,5 lítra, V8 vél með tveimur forþjöppum en aflmeiri en áður. Í grunngerð skilar vélin 557 hestöflum. Hröðun úr kyrrstöðu er 4,3 sekúndur sem eftirtektarvert í ljósi stærðar og þyngdar bílsins. Vélin er fáanleg enn aflmeiri í hinni skemmtilegu og sportlegu S-Model útfærslu og er þá heil 585 hestöfl. Við þetta fer hröðun úr kyrrstöðu 100 km niður í 4,2 sekúndur sem er á við fremstu sportbíla í fólksbílastærð.
Undirvagni bílsins var einnfremur breytt í því augnamiði að skila enn betri aksturseiginleikum og snerpu. Viðbragð frá vél og gírskiptingu er sportlegra en nokkru sinni fyrr og undirstrikar vel aðalsmerki AMG Driving Performance.