Laugardaginn 21. mars halda Toyota Kauptúni og Kraftvélar sameiginlega atvinnubílasýningu undir yfirskriftinni Meira trukk.
Sýningin verður í Kauptúni 6, Garðabæ og stendur frá kl. 12 – 16. Úrval vinnuþjarka verður á svæðinu, allt frá snúningsliprum Aygo, Yaris eða Proace upp í stærstu sendi- og vörubíla frá IVECO. Sölumenn Toyota Kauptúni og Kraftvéla kynna kosti og kjör á frábærum bílum. Einnig verða Toyota lyftarar í sýningarsal.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að kynna sér það helsta úr flokki atvinnubíla og -tækja í dag.
Allir velkomnir, kaffi, gos og kleinur.