Fara í efni

Með ódýr­ari 7 manna bíl­um

Fréttir

Fransk­ir bíla­fram­leiðend­ur virðast al­veg með það á hreinu að spar­neytn­ir bíl­ar sem eru með lít­inn kolt­ví­sýr­ingsút­blást­ur eru það sem hinn al­menni kaup­andi er á hött­un­um eft­ir. Jú, og ódýr­ir verða bíl­arn­ir að vera líka.

Citroën hef­ur tek­ist vel upp hvað þessi atriði varðar. Það vel að hinn 7 manna Citroën Grand C4 Picasso eyðir ekki nema um 4-5 lítr­um á hundraðið og hann fell­ur und­ir það að vera vist­hæf­ur þar sem Co2 gildið eru und­ir 120g/​km, eða 105g/​km. Það er ánægju­legt að svo stór­ir bíl­ar geti verið með svona heppi­leg­ar töl­ur í þess­um flokk­um. Í til­viki Citroën Grand C4 Picasso kem­ur það raun­ar niður á öðrum töl­um, t.d. er hann dágóða stund að kom­ast úr kyrr­stöðu upp í hundrað, eða góðar 12,6 sek­únd­ur. Lip­ur er hann í það minnsta ekki.

Fyr­ir hverja er hann?

Þeir sem vilja bíl sem kemst á ör­fá­um sek­únd­um upp í hundrað vita að sjálf­sögðu hvar þeir leita að slíku tæki. Það eru ef­laust ekki þeir sömu og þurfa að koma fimm krökk­um og fylgi­hlut­um fyr­ir í einu og sama far­ar­tæk­inu. Þess vegna ætla ég ekki að eyða púðri í að fjalla um snerpu. Í vor var gerð ræki­leg út­tekt á 7 manna bíl­um í bíla­blaði Morg­un­blaðsins. Þar kom á óvart hversu marg­ir bíl­ar standa stærri fjöl­skyld­um til boða á bíla­markaðnum hér á landi. Sá ódýr­asti er Chverolet Or­lando sem kost­ar frá 3.890.000 kr. Næstu tveir 7 manna bíl­arn­ir í röð þeirra ódýr­ustu eru seld­ir hjá Brim­borg en það eru Ford Grand C-Max kost-ar 4.050.000 kr. og Mazda 5 frá 4.090.000 kr. Grand C4 Picasso kost­ar 4.390.000 kr. bein­skipt­ur og 4.590.000 kr. sjálf­skipt­ur og til­heyr­ir því ódýr­asta flokki 7 manna bíla. Leyfi ég mér að mæla með þeim bein­skipta fyr­ir þá sem ekki eru van­ir eða spennt­ir fyr­ir ETG6-skipt­ing­unni en hún er sann­ar­lega sér­stök og krefst þol­in­mæði sem for­eldr­ar fimm barna eiga kannski ekki til. Í raun­inni er ETG6 tölvu­stýrður 6 gíra kassi án kúpl­ings­fet­ils. Hug­mynd­in og raun­in (þegar ökumaður hef­ur náð tök­um á skipt­ing­unni) er sú að hann kass­inn skipti sér alltaf við besta snún­ing með til­liti til eyðslu. Það sem gæti gerst, ef maður er ekki bú­inn að finna takt­inn innra með sér við skipt­ing­una, er að bíl­stjóri gæti skallað stýrið sé gefið of mikið í. Þá rykk­ir nefni­lega vel í. En ætli það væru ekki mis­tök sem ein­ung­is væru gerð einu sinni. Það var ekki prófað í þess­um reynsluakstri!

Útlit og búnaður

Dag­inn sem Citroën myndi fram­leiða fjöl­nota­bíl sem væri full­kom­lega „venju­leg­ur“ út­lits yrðu ein­hverj­ir ef­laust undr­andi. Hönnuðunum tekst nefni­lega iðulega að koma manni á óvart með hverju tromp­inu á fæt­ur öðru og þar er C4 Grand Picasso eng­in und­an­tekn­ing. Hann er framúr­stefnu­leg­ur með fögr­um fram­ljós­um og snyrti­legu grilli. Lín­urn­ar eru áber­andi og hönn­un­in ein­föld og stíl­hrein. Framrúðan er tölu­vert stærri en geng­ur og ger­ist og það er eig­in­lega al­veg frá­bært. Það er ekki bara bíl­stjór­inn sem græðir á því held­ur all­ir farþeg­arn­ir því rúðan nær langt upp, yfir höfuð öku­manns. Fyr­ir vikið er nokkuð bjart inni í bíln­um, þ.e. í dags­birtu.

Sæt­in eru öll still­an­leg og eru niður­fell­an­leg borð í sæt­is­bök­un­um sem ég veit að ung­um farþegum þykir ljóm­andi skemmti­legt. Í heild­ina litið er C4 Grand Picasso vel bú­inn fjöl­skyldu­bíll sem óvilj­andi sér til þess að ökumaður haldi sig á skikk­an­leg­um hraða. Bjart og gott rýmið nýt­ist vel í þess­um spar­neytna og áhuga­verða bíl. Þeir sem vilja bera verð og gæði 7 manna bíla ít­ar­lega sam­an geta fundið um­fjöll­un­ina inni á bíla­vef blaðsins, www.mbl.is/​bill, en um­fjöll­un­in þar er frá 21. maí 2014.

mal­in@mbl.is