Fara í efni

Mazda MX-30 rafbíllinn fær 5 stjörnur hjá Euro NCAP

Fréttir

Mazda MX-30, fyrsti 100% hreini rafbíllinn frá Mazda kom gríðarlega vel út í öryggisprófun hjá Euro NCAP öryggisstofnunni og fékk fimm stjörnur. EuroNCAP er í eigu bifreiðaeigandafélaga í Evrópu og sér um árekstrarpróf og mat öryggis nýrra bíla.

Euro NCAP öryggisstofnunin kynnti nýverið til sögunnar nýjar prófunaraðferðir þar sem auknar kröfur eru gerðar til öryggisbúnaðar og aðstoðarkerfa bíla. Mazda MX-30 rafbíllinn undirgekkst nýjasta prófið og hlaut frábæra einkunn eða 91 stig fyrir öryggi bílstjóra og farþega þegar kemur að öryggi í árekstri að framan og á hlið. Þetta er besti árangur hingað til í þessum flokki, eftir að nýir prófunarstaðlar voru kynntir. Á sama tíma hlaut Mazda MX-30, 87 stig fyrir getu sína til að vernda börn í bílnum.

Umfang öryggiskerfa og virkni þeirra skipta ótrúlega miklu máli þegar bílar eru öryggisprófaðir og hvort bíll geti náð 5 stjörnum. Mazda MX-30 er ótrúlega vel búinn fjölda virkra öryggiskerfa til að koma í veg fyrir árekstur við aðra vegfarendur - hvort sem það eru bílar í umferðinni eða gangandi eða hjólandi vegfarendur. Kerfið er útbúið skynjurum sem aðstoða ökumann við að greina aðkallandi hættur í umhverfinu og láta ökumann vita um leið. Daglegur akstur í Mazda MX-30 verður enn auðveldari með framrúðuskjánum og bakkmyndavélinni. Einnig má nefna Smart City Brake stuðning sem er stöðugt að fylgjast með hraða bílsins og fjarlægð í næstu hindrun og bregst við óvæntum hindrunum. Mazda MX-30 rafbíll er búinn 10 loftpúðum, sem er nýtt hjá Mazda, öryggispúðar eru t.a.m staðsettir milli ökumanns og farþega að framan auk hliðarpúða í aftursæti.

Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll á einstaklega hagstæðu verði sem gerir fleirum kleift að njóta þeirra þæginda, sparnaðar og jákvæðra umhverfisáhrifa sem rafbílar veita í bæjarsnattinu. Glænýr Mazda MX-30 er búinn ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, hárri sætisstöðu og japönskum Mazda gæðum með víðtækri ábyrgð og innbyggðri varmadælu á einstöku verði frá 4.090.000 kr.

Við hönnun Mazda MX-30 var ekkert slakað á gæðakröfum japanska bílaframleiðandans sem endurspeglast í 5 ára víðtækri ábyrgð á bílnum og 8 ára (160.000 km.) ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðarskilmálar gilda aðeins um bíla sem eru keyptir hjá Brimborg og eru háðir því að bíllinn komi í þjónustu skv. skilmálum Mazda Motor Corporation og Brimborgar.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um Mazda MX-30 100% rafbíl er að finna á vef Mazda á Íslandi eða hjá sölustjóra Mazda á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 5157802. Smelltu hér til að kynna þér allt um Mazda MX-30 100% rafbíl.