Í lok október höfðu alls 11.641 nýir fólksbílar verið nýskráðir hér á landi frá áramótum, samanborið við 11.448 á sama tímabili í fyrra. Það jafngildir 1,7% fjölgun milli ára.
Þessi viðsnúningur vekur athygli enda hafði samdráttur einkennt nýskráningar fyrr á árinu. Nýskráningum hefur nú fjölgað þrjá mánuði í röð og var aukningin sérstaklega mikil í október, sem reyndist stærsti mánuður ársins hjá einstaklingum og almennum fyrirtækjum.
Líklegt er að breytingar á rafbílastyrkjum, sem tóku gildi 1. nóvember, hafi átt þátt í þessari þróun. Styrkir til kaupa á nýjum rafmagnsfólksbílum lækkuðu um 100 þúsund krónur um mánaðamótin og hámarksverð styrkhæfra bíla lækkaði jafnframt um tvær milljónir króna.
Breytingarnar kunna því að hafa orðið til þess að kaupendur flýttu fyrir kaupum og nýskráningum rafmagnsbíla.

Rafmagnsbílar í miklum meirihluta nýskráninga
Rafmagnsbílar eru áfram langalgengasti orkugjafi nýskráðra fólksbíla og hefur hlutdeild þeirra aukist verulega milli ára. Alls eru 54,3% þeirra fólksbíla sem nýskráðir hafa verið á árinu hreinir rafmagnsbílar, samanborið við 36% á sama tímabili í fyrra.
Hlutdeild rafmagnsbíla hefur því aukist um 18,3 prósentustig á einu ári. Til samanburðar var hlutdeild þeirra aðeins 23,8% á fyrstu tíu mánuðum ársins 2020.
Þróunin hefur verið sérstaklega hröð undanfarna mánuði og samkvæmt bráðabirgðatölum kann hlutdeild rafmagnsbíla í nýskráningum októbermánaðar að hafa verið um 89%. Reynist það rétt er um að ræða eitt hæsta hlutfall rafmagnsbíla sem mælst hefur í einum mánuði hér á landi.
Á sama tíma hefur dregið úr nýskráningum bíla með öðrum orkugjöfum.
Sé litið til ársins í heild koma hefðbundnir tvinnbílar (e. hybrid) næstir á eftir rafmagnsbílum með 19,5% hlutdeild og tengiltvinnbílar (e. PHEV) með 17,1%. Samanlagt eru þessir þrír flokkar tæplega 91% allra nýskráðra fólksbíla.
Hlutdeild hefðbundinna bensín- og dísilbíla heldur hins vegar áfram að minnka og er nú samanlagt innan við 9%.

Breyttir rafbílastyrkir tóku gildi um mánaðamótin
Frá og með 1. nóvember tóku gildi nýjar reglur um styrki til kaupa á rafknúnum fólksbílum. Styrkur vegna kaupa á nýjum rafmagnsfólksbíl lækkaði úr 500 þúsund krónum í 400 þúsund krónur og hámarksverð styrkhæfra fólksbíla lækkaði úr 10 milljónum króna í 8 milljónir króna.
Breytingarnar gilda um umsóknir sem eru samþykktar frá og með 1. nóvember, óháð því hvenær viðkomandi bíll var keyptur eða nýskráður.
Styrkir til kaupa á rafknúnum sendibílum eru hins vegar óbreyttir. Þeir nema áfram 500 þúsund krónum og hámarksverð styrkhæfra sendibíla er áfram 10 milljónir króna.
Stuðningur við orkuskipti stærri atvinnubíla, vörubíla og hópferðabíla heldur einnig áfram samkvæmt þeim reglum sem um viðkomandi ökutækjaflokka gilda.
Mikilvægt er að kaupendur kynni sér gildandi reglur og skilyrði styrkveitinga áður en gengið er frá kaupum.
Einstaklingar sækja í sig veðrið
Einstaklingar hafa nýskráð alls 4.942 nýja fólksbíla á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er 5,5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra þegar nýskráningarnar voru 4.684.
Október reyndist stærsti mánuður ársins í nýskráningum einstaklinga og átti því verulegan þátt í viðsnúningi markaðarins.
Fjölgunin vekur athygli í ljósi þess að nýskráningar einstaklinga drógust verulega saman árið 2024 og hafa enn ekki náð þeim fjölda sem var á árunum 2022 og 2023

Rafmagnsbílar 85,5% nýskráninga einstaklinga
Rafvæðing fólksbílaflotans er hvergi jafn áberandi og meðal einstaklinga. Alls eru 85,5% nýskráðra fólksbíla einstaklinga á árinu hreinir rafmagnsbílar, samanborið við 62,1% á sama tímabili í fyrra.
Hlutdeild rafmagnsbíla hefur þannig aukist um 23,4 prósentustig milli ára og aldrei verið hærri.
Til samanburðar voru rafmagnsbílar 31,2% nýskráninga einstaklinga árið 2020. Á aðeins sex árum hefur hlutdeild þeirra því nær þrefaldast.
Á sama tíma hefur hlutdeild tengiltvinnbíla minnkað verulega. Árið 2021 voru þeir 30,9% nýskráninga einstaklinga en eru nú innan við 10%.
Þessar tölur sýna glögglega hversu hröð umskipti hafa orðið á fólksbílamarkaði. Hreinir rafmagnsbílar hafa í vaxandi mæli tekið við af öðrum orkugjöfum og eru nú orðnir langalgengasti kostur einstaklinga við kaup á nýjum fólksbílum.

Mikil fjölgun nýskráninga hjá fyrirtækjum
Fyrirtæki, önnur en ökutækjaleigur, hafa nýskráð alls 1.774 nýja fólksbíla það sem af er ári. Það er 29,6% fjölgun frá sama tímabili í fyrra þegar nýskráningarnar voru 1.369.
Þetta er langmesta hlutfallslega fjölgunin meðal kaupendahópanna þriggja og vekur athygli í ljósi þess að nýskráningar fyrirtækja drógust verulega saman árið 2024.
Október var jafnframt stærsti mánuður ársins í nýskráningum almennra fyrirtækja.
Rafmagnsbílar eru einnig ráðandi meðal nýskráninga fyrirtækja. Hlutdeild þeirra er komin í 75% samanborið við 54,8% á sama tímabili í fyrra. Það er aukning um 20,2 prósentustig milli ára.
Tengiltvinnbílar eru næstalgengastir og þar á eftir koma hefðbundnir tvinnbílar.
Þróunin hjá fyrirtækjum er því að mörgu leyti sambærileg við þróunina hjá einstaklingum. Hreinir rafmagnsbílar verða sífellt stærri hluti nýskráninga á sama tíma og hlutdeild annarra orkugjafa minnkar.

Rafmagnsbílar eru einnig ráðandi meðal nýskráninga fyrirtækja. Hlutdeild þeirra er komin í 75% samanborið við 54,8% á sama tímabili í fyrra. Það er aukning um 20,2 prósentustig milli ára.
Tengiltvinnbílar eru næstalgengastir og þar á eftir koma hefðbundnir tvinnbílar.
Þróunin hjá fyrirtækjum er því að mörgu leyti sambærileg við þróunina hjá einstaklingum. Hreinir rafmagnsbílar verða sífellt stærri hluti nýskráninga á sama tíma og hlutdeild annarra orkugjafa minnkar.
Ökutækjaleigur áfram stærsti kaupendahópurinn
Ökutækjaleigur eru áfram stærsti einstaki kaupendahópur nýrra fólksbíla hér á landi. Alls hafa þær nýskráð 4.924 fólksbíla það sem af er ári, eða um 42% allra nýskráninga.
Nýskráningum ökutækjaleiga hefur þó fækkað um 8,7% miðað við sama tímabil í fyrra þegar þær voru 5.392 talsins.
Þróunin er því önnur hjá ökutækjaleigum en hjá einstaklingum og almennum fyrirtækjum, þar sem nýskráningum hefur fjölgað milli ára.

Tvinnbílar eru áfram algengastir meðal nýskráðra bílaleigubíla og eru 37,2% þeirra. Þar á eftir koma tengiltvinnbílar með 28,6% hlutdeild.
Hlutdeild rafmagnsbíla hjá ökutækjaleigum er 16%, samanborið við 21,6% á sama tímabili í fyrra. Hún hefur því minnkað um 5,6 prósentustig milli ára.
Þetta er athyglisverður munur á milli kaupendahópa. Á meðan hreinir rafmagnsbílar eru orðnir ráðandi hjá einstaklingum og almennum fyrirtækjum eru tvinnbílar og tengiltvinnbílar áfram langalgengastir hjá ökutækjaleigum.

Áhugaverðir mánuðir fram undan
Niðurstöður fyrstu tíu mánaða ársins sýna að nýskráningar fólksbíla hafa tekið verulega við sér. Eftir þrjá mánuði í röð með auknum nýskráningum er heildarfjöldinn nú orðinn meiri en á sama tíma í fyrra.
Á sama tíma hefur rafvæðing fólksbílamarkaðarins tekið stórt skref fram á við. Meira en helmingur allra nýskráðra fólksbíla á árinu er nú knúinn rafmagni eingöngu og hlutfallið er enn hærra hjá einstaklingum og almennum fyrirtækjum.
Breytingar á rafbílastyrkjum um mánaðamótin kunna þó að hafa haft veruleg áhrif á eftirspurn í október. Næstu mánuðir munu því gefa skýrari vísbendingar um hvort aukningin endurspegli varanlegan viðsnúning á markaðnum eða hvort eftirspurn hafi að hluta verið færð fram í tímann vegna breytinganna.