Fara í efni

Kodiaq læt­ur að sér kveða

Fréttir

Frétt af mbl.is

Skoda er með vin­sælli bíl­teg­und­um hér á landi og nýj­asta út­spilið er lík­legt til að styðja við þær vin­sæld­ir, því þar er jeppi á ferð.Jepp­inn nefn­ist Kodiaq og var hann kynnt­ur með viðhöfn fyr­ir blaðamönn­um und­ir lok síðasta mánaðar. Vett­vang­ur kynn­ing­ar­inn­ar var sú íðilfagra Miðjarðar­hafs­eyja, Mall­orca.

Hlaðinn af hag­nýt­um búnaði

Við kynn­ing­una kom fram að lagt hefði verið upp með að heim­færa nú­ver­andi hönn­un­ar­heim Skoda yfir á jeppa, og á meðfylgj­andi mynd­um geta les­end­ur metið hvernig til hef­ur tek­ist. Hönnuðir fyr­ir­tæk­is­ins höfðu sem fyrr hið tíma­lausa tékk­neska hand­verk krist­alsk­urðar­meist­ara til inn­blást­urs við hönn­un bíls­ins. Hitt er óum­deilt að vel er í lagt af hálfu Skoda þegar Kodiaq er ann­ars veg­ar því hann er hlaðinn búnaði af ýmsu tagi. Má þar á meðal nefna að inn­an­dyra er að finna efnivið á borð við burstað ál í bland við leður eða Alcant­ara, 10 hátal­ara hljóðkerfi frá Cant­on, þriggja svæða loft­hita­stýr­ingu og átta tommu snerti­skjá fyr­ir skip­an­ir og skemmti­kerfi. Þá er plássið býsna gott, en Kodiaq stát­ar að sögn af stærsta far­ang­urs­rými í sín­um flokki, eða 720 lítr­um sem má breyta í 2.065 lítra með niður­fell­ingu sæta. Einnig er hann með mesta fóta­rými farþega í aft­ur­sæti, eða 104 millí­metra. Þá má fá þriðju sætaröðina upp, en þau sæti falla niður sem gólf far­ang­urs­geymslu þegar þau eru ekki í notk­un. Loks er gam­an að geta þess að báðir fram­h­urðaflek­arn­ir hafa að geyma inn­fellda regn­hlíf í fullri stærð.

Nán­ar verður sagt frá Kodiaq í reynsluakst­urs­grein á nýju ári.

http://www.mbl.is/bill/frettir/2016/12/16/kodiaq_laetur_ad_ser_kveda/