Fara í efni

Kia XCeed vinnur til iF hönnunarverðlauna

Fréttir
Nýr Kia XCeed
Nýr Kia XCeed

Nýr Kia XCeed vann á dögunum til hinna eftirsóttu iF hönnunarverðlauna. Kia XCeed kom á markað sl. sumar og hefur fengið mjög góðar viðtökur.

XCeed er borgarjepplingur eða svokallaður crossover þykir afar vel heppnaður í hönnun eins og verðlaunin sýna og sanna. Bíllinn er hannaður í hönnunarmiðstöð Kia í Frankfurt í Þýskalandi undir handleiðslu Gregory Guillaume, aðstoðarforstjóra hönnunardeildar Kia Motors í Evrópu.

Kia hefur unnið til alls 20 iF hönnnunarverðlauna fyrir bíla sína síðan 2010 og allir meðlimir Ceed fjölskyldunnar hafa nú unnið til verðlaunanna þ.e. Ceed, ProCeed, Ceed Sportswagon og nú XCeed sem er væntanlegur til Öskju í Plug-in Hybrid útfærslu í maí. Sá bíll er bæði með rafmótor og bensínvél og er drægni á rafmagni þá 58 km og uppgefin eyðsla miðað við 100 km akstur aðeins 1,4 lítrar. Hægt er að forpanta XCeed í Plug-in Hybrid útfærslu hjá bílaumboðinu Öskju sem er umboðasaðili Kia á Íslandi.