Fara í efni

Kia XCeed hlýtur Gullna stýrið

Fréttir

Nýr Kia XCeed var sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri á verðlaunahátíð í Þýskalandi sl. fimmtudag. Verðlaunin eru talin þau eftirsóttustu í bílaiðnaðinum í Þýskalandi en það eru fjölmiðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag sem standa að verðlaununum sem voru fyrst veitt árið 1976.

Kia XCeed vann í flokki bifreiða sem kosta undir 35 þúsund evrum (tæplega 4,8 milljónum króna) og var valinn sigurvegari eftir harða samkeppni við alls 58 nýja bíla. XCeed er glænýr bíll úr smiðju suður-kóreska bílaframleiðandans og er borgarjepplingur (crossover). XCeed er einn tæknivæddasti bíllinn í sínum flokki og má þar nefna 10,25“ upplýsingaskjá og 12,3“LCD mælaborð.  Hönnunin á XCeed er falleg og sportleg og mikið er lagt í innanrýmið. Kia hefur lagt mikið í að gera XCeed sem bestan í aksturseiginleikum og þæginda- og öryggisstuðullinn er einnig mjög hár.

Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Kia á Íslandi, frumsýndi XCeed á dögunum. Bíllinn er nú fáanlegur með 1,0 og 1,4 bensínvélum, með framhjóladrifi og 7 þrepa DCT sjálfskiptingu, en á næsta ári kemur XCeed í rafmagnaðri tengiltvinnútfærslu sem verður án efa mjög vinsæl útfærsla af bílnum.