Fara í efni

Kia Sorento vinnur fleiri verðlaun

Fréttir

Nýr Kia Sorento heldur áfram að sanka til sín glæsilegum verðlaunum. Þessi stóri og stæðilegi bíll hefur nú bætt enn einni rósinni í hnappagatið með því að vinna til verðlaunanna Besti stóri sportjeppi ársins 2021 hjá breska bílatímaritinu What Car?

Kia Sorento var nýverið sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri í Þýskalandi í gær en það eru fjölmiðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag sem standa að verðlaununum. Þá var bíllinn einnig valinn Bíll ársins hjá breska Carbuyer tímariitnu

Fjórða kynslóð Kia Sorento kemur nú með þremur mismunandi orkugjöfum; sem tengiltvinnbíll (Plug-in Hybrid), tvinnbíll (Hybrid) og í dísilútfærslu. Nýr Sorento er enn rúmbetri en forveri hans og er sjö manna. Bíllinn hefur auk þess mikla dráttargetu eða allt að 2,5 tonn.

,,Við erum mjög stolt af hinum nýja Kia Sorento og það er ánægjulegt að sjá hversu góðar viðtökur bíllinn er að fá síðan hann var frumsýndur seinni hluta síðasta árs. Nýr Sorento hefur unnið til fjölda verðlauna og nú síðast hjá hinu virta bílatímari What Car?," segir Won-Jeong Jeong, forstjóri hjá Kia Motors í Evrópu.

,,Viðtökur hafa verið frábærar á hinum nýja Kia Sorento, enda er þetta vel heppnaður bíll í alla staði og kaupendahópurinn traustur hér á landi. Bíllinn skarar fram úr á ýmsum sviðum og hefur Arctic Edition útfærslan með 3,5 cm. upphækkun og 32" dekkjum vakið athygli. Þá er 2,5 tonna dráttargetan að heilla marga,“ segir Þorgeir R. Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.