Hinn nýi rafbíll Kia EV6 hefur verið valinn Bíll ársins 2022. Þetta er ein mesta viðurkenning sem bíll getur hlotið.
Kia EV6 hefur fengið frábærar viðtökur síðan hann var frumsýndur á síðasta ári. Dómnefnd sem samanstóð af 59 bílablaðamönnum frá 22 Evrópulöndum valdi Kia EV6 Bíl ársins en hann hafði betur og hampaði titlinum í hörkubaráttu við Renault Megane E-Tech, Hyundai IONIQ 5, Peugeot 308, Škoda Enyaq iV, Ford Mustang Mach-E og Cupra Born. Valið um bíl ársins hefur verið haldið allar götur síðan 1965.
,,Það er óvæntur en mikill heiður að Kia EV6 hljóti þennan stóra titil. Kia á það sannarlega skilið því það hefur verið unnið ötullega að því að gera Kia EV6 að því sem hann er. Framfarir Kia eru miklar og það skilar sér í þessum sigri," segir Frank Janssen, forseti Car of the Year verðlaunanna.
Kia EV6 hefur allt 528 km drægi á rafhlöðunni og getur hlaðið 10-80% á aðeins 18 mínútum. Hvort tveggja er með því besta sem þekkist í rafbílaheiminum.
,,Það er gríðarlega mikill heiður að vinna Bíl ársins 2022. Þetta er í fyrsta skipti sem bíll frá Kia vinnur til þessara virtu verðlauna. Kia EV6 er tímamótabíll og bíður upp á allt það besta sem rafbíll," segir Jason Jeong, forstjóri hjá Kia Europe