Kia mun halda flotta bílasýningu við Kjarnann á Sauðárkróki á morgun laugardag kl. 12-16 laugardaginn 17. maí. Fjölmargir nýir Kia bílar verða á staðnum og má þar m.a. nefna hinn sparneytna Rio, rúmgóðan cee‘d Sportswagon, sjö sæta Carens, sportjeppann Sportage og hinn stóra og vel útbúni Sorento jeppa. Sýningin er haldin í samstarfi við KS sem er þjónustuaðili Kia á Sauðárkróki.
,,Það er alltaf skemmtilegt og spennandi að fara með bílasýningu á landsbyggðina og við hlökkum til að fara norður á Sauðárkrók og kynna Kia bílanna fyrir heimamönnum. Kia bílarnir hafa slegið í gegn á Íslandi eins og annars staðar í heiminum. Þeir eru vel hannaðir, hagkvæmir og áreiðanlegir. Allir nýir Kia bílar eru með 7 ára ábyrgð sem þýðir að nýr Kia bíll er í ábyrgð til 2021,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.
Kia bílasýning á Sauðárkrók
16.05.2014
Fréttir