Fara í efni

KIA bætir við raf- og tengiltvinnbílum

Fréttir
Kia X-Ceed fyrir framan Hallgrímskirkju
Kia X-Ceed fyrir framan Hallgrímskirkju

Kia Motors ætlar sér áfram sér stóra hluti í rafbílavæðingunni. Kia mun bæta við rafbíl og tengiltvinnbílum í bílaflotann á næstunni.

Kia Sorento í Hybrid útfærslu kemur á markað nú í haust. Þessi stóri og stæðilegi sporteppi verður með 1,6 lítra bensínvél með forþjöppu sem samlagt skila 240 hestöflum og alls 440 Nm í togi.

Hann mun svo í byrjun næsta árs koma í Plug-In Hybrid útfærslu og mun verða með drægi upp á um 70 km. Plug-in Hybrid útfræslan verður með öflugan rafmótor sem skilar samstals 265 hestöflum.

Þetta verður fjórða kynslóð Kia Sorento sem er flaggskip Kia í sportjeppaflotanum.

Nýr Kia Sorento tengiltvinn bætist við tengiltvinnbílaflóru Kia en nýverið bættust einnig við X-Ceed borgar jepplingurinn og Ceed Sportswagon skutbíllinn við með tengiltvinn drifrás. Sorento verður fjórhjóladrifinn með sæti fyrir allt að sjö farþega.

Þá er glænýr rafbíll á leiðinni frá Kia. Um er að ræða sportlegan jeppling sem á að draga rúma 500 km á rafmagninu. Stefnt er á að þessi nýi Kia rafbíll komi á markað á næsta ári. Kia kynnti hugmyndabílana Imagine og Futuron á síðasta ári sem fengu mikla athygli og ef marka má myndir líkist þessi nýi rafbíll þeim síðarnefnda að nokkru leyti og þar er ekki leiðum að líkjast. Kia er nú þegar með tvo mjög vinsæla rafbíla Soul og e-Niro en þessi nýi jepplingur yrði þá þriðji hreini rafbíll bílaframleiðandans.