Fara í efni

Kallað eftir leiðréttingu á mistökum í vörugjöldum

Fréttir
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju

Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju á Íslandi, gagnrýnir í viðtali við Morgunblaðið að mistök í vörugjaldakerfinu hafi ekki verið leiðrétt, þrátt fyrir að þau hafi verið kynnt fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis.

Hann segir að breytingar á vörugjöldum hafi leitt til tvöfaldrar skattlagningar á tengiltvinnbíla og að stjórnvöld hafi verið upplýst um málið. Að hans mati hafi þetta skapað ósanngjarna stöðu fyrir bifreiðar sem ætlað er að styðja við orkuskipti.

Jón Trausti lýsir vonbrigðum með að nefndin hafi ekki brugðist við málinu og segir mikilvægt að farið verði yfir vörugjaldakerfið í heild, með það að markmiði að leiðrétta þau mistök sem upp hafi komið.

Sjá frétt á vef MBL.