Laugardaginn 20. febrúar heldur Toyota árlega jeppasýningu sína í Kauptúni í Garðabæ. Þetta er í 7. sinn sem jeppasýningin er haldin en hún hefur unnið sér sess meðal jeppaáhugamanna sem einn af hápunktum ársins. Framundan er sá tími þegar vetrarferðamennska á jeppum nær hámarki en jafnfram er stutt í vorið og margir farnir að huga að jeppaferðum sumarsins.
Jeppasýningin er að þessu sinni haldin í samvinnu við Ellingsen. Á sýningunni verða Land Cruiser, Hilux og RAV4 í fjölmörgum útfærslum. Einnig fjórhjól, sexhjól, BUGGY bílar, kajakar, veiðistangir, reiðhjól og útivistarfatnaður. Á sýningunni verða Brenderup kerrur, talstöðvar frá Motorola og Klettur sýnir dekkin undir bílana.
Í verslun Toyota í Kauptúni verður 20% afsláttur af aukahlutum meðan á sýningu stendur.