Fara í efni

Ísland fær einn af 270 Polestar 2 'BST edition 270'

Fréttir

Polestar 2 'BST edition 270' inniheldur erfðaefni (DNA) Polestar fyrir afburða aksturseiginleika

 

Polestar breikkar nú vöruframboð sitt af tjúnuðum Polestar Engineered bílum með kynningu á Polestar 2 BST edition 270. Nýja útgáfan nýtir áratuga reynslu Polestar af tjúnun bíla með það að markmiði að afhenda öflugasta rafknúna ökumannsbíl Polestar hingað til. Eins og gefið er í skyn í nafninu verða aðeins 270 eintök smíðuð og aðeins fyrir markaði Polestar í Evrópu, Norður-Ameríku og Kína. Ísland fær einn af þessum bílum.

„Við fengum frábær viðbrögð við sérbreytta Polestar 2 sem við sýndum á Goodwood Festival of Speed árið 2021 og viðbrögðin gerðu það ljóst – við ættum að búa til framleiðsluútgáfu,“ segir Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar.

Framleiðslubíllinn inniheldur vélrænar breytingar ásamt öðrum breytingum umfram núverandi Polestar 2 bíla. Niðurstaðan er bíll sem skilar einstakri, kraftmikilli, upplifun undir stýri.

Rafmótorarnir tveir og 78 kWst rafhlaðan hafa verið endurbætt fyrir hámarksafköst upp á 350 kW (476 hestöfl) og 680 Nm af togi, ásamt meiri hröðun samhliða sportlegri aksturseiginleikum.

Breytingar á undirvagni eru meðal annars lækkuð aksturshæð (-25 mm), sérþróaðir og einstakir Öhlins tvíhliða stillanlegir demparar með aukastillingum aðgengilegum undir framskottshlífinni, jafnvægisstöng að framan, 20% stífari gormar og einstakar nýjar mattsvartar 21 tommu álfelgur sem eru innblásnar af Polestar 1. Dekkin eru 245/35R21 Pirelli P Zero, þróuð sérstaklega fyrir þennan bíl. Bremsurnar eru sem fyrr 4 stimpla Brembo.

Útfærslan er fáanleg í takmörkuðu upplagi, annað hvort í litnum Thunder eða Snow með Charcoal WeaveTech innréttingu. Yfirbyggingin er meira afgerandi þökk sé fullmáluðum stuðurum og sílsakitti. Mattsvört strípa er fáanleg sem valkostur, sem og mött Battleship Gray satín heilfilma. Hliðarspeglar eru klæddir í gljáandi svörtu. „Sænska gyllingin“ er til staðar sem fyrr þar á meðal á bremsuklossum, demparahlutum, dekkjaventlum og öryggisbeltum.

Áhugasamir viðskiptavinir á viðeigandi mörkuðum geta fengið nánari upplýsingar á https://www.polestar.com/polestar-2/bst-edition-270. Áætlað er að framleiðsla hefjist um mitt ár 2022 og búist er við afhendingum á fjórða ársfjórðungi.

Polestar hyggst skrá sig á Nasdaq í fyrirhugaðri sameiningu við Gores Guggenheim, Inc. (Nasdaq: GGPI, GGPIW og GGPIU), sem gert er ráð fyrir að verði lokið á fyrri hluta árs 2022.