Fara í efni

Ion­iq raf­bílaþrenna frá Hyundai í Genf

Fréttir

Frétt af mbl.is

Á bíla­sýn­ing­unni í Genf sem hefst í byrj­un mars kynn­ir Hyundai nýj­an bíl und­ir nafn­inu Ion­iq. Þessi nýi raf­bíll er sá fyrsti í heim­in­um sem fá­an­leg­ur verður í einu og sama út­lit­inu en með þrenns­kon­ar raf­knún­ar drifrás­ir.

Þannig verður Ion­iq boðinn sem 100% raf­bíll, sem tvinn­bíll (Hybrid) eða sem ten­gilt­vinn­bíll (Plug-in Hybrid) sem gef­ur viðskipta­vin­um Hyundai kost á að velja þá raf­bíla­lausn sem hent­ar hverj­um og ein­um. Fram­leiðsla á Ion­iq raf­bíln­um og tvinn­bíln­um hefst síðar á þessu ári og verða þeir boðnir til sölu hjá Hyundai BL í Garðabæ í haust.

„Með Ion­iq tefl­ir Hyundai fram öllu því nýj­asta sem völ er á í tækni­lausn­um raf­bíla og sam­ein­ar það í ákjós­an­leg­um og hag­kvæm­um fjöl­skyldu­bíl. Í Ion­iq tvinn­bíln­um og  ten­gilt­vinn­bíln­um er auk raf­mótors 1,6 lítra bens­ín­vél með beinni innspraut­un sem skil­ar 105 hest­öfl­um við 174 Nm togI. Vél­in hef­ur verið sniðin að eig­in­leik­um Hybrid tækn­inn­ar og með nýrri og þægi­legri 6 þrepa, tveggja kúpl­inga sjálf­skipt­ingu verður Ion­iq einn öfl­ug­asti bíll­inn í flokki tvinn­bíla. Með raf­mótorn­um verður hægt að njóta hljóðlátra þæg­inda raf­bíls­ins og þegar þörf kref­ur verður hægt að fá mikið tog nán­ast sam­stund­is og kem­ur aflið að mestu leyti frá raf­mótorn­um. Hönn­un nýrr­ar fjöl­arma aft­ur­fjöðrun­ar bæt­ir akst­ur­seig­in­leika þegar raf­mótor­inn er lát­inn spyrna bíln­um áfram af fullu afli,“ seg­ir í til­kynn­ingu.

Lít­il los­un í blönduðum akstri

Ion­iq Hybrid tvinn­bíll­inn er með raf­mótor sem skil­ar 32 kWh (43,5 hest­öfl­um) við 170 Nm há­mark­s­tog. Raf­hlaðan sem staðsett er und­ir aft­ur­sæt­inu er Lit­hi­um-ion-Polymer með 1,56 kílówatts­stunda hleðslu. Sam­an skila bens­í­vél­in og raf­mótor­inn 141 hestafli (103.6 kW) og 265 Nm togi. Í blönduðum akstri er CO2 út­blástur­los­un­in ein­ung­is 79 g/​km.

Þeir sem velja Ion­iq tengit­vinn­bíl geta ekið um það bil 50 km á 8.9 kílówatts­stunda hleðslu Lit­hi­um-ion-Polymer raf­hlöðunn­ar. Raf­mótor­inn er 61 hestafl (45 kW) og með 1,6 lítra bensímótorn­um að auki er CO2 út­blást­ur aðeins 32 g/​km.

Í Ion­iq raf­bíln­um er 28 kílówatts­stunda Lit­hi­um-ion-Polymer raf­hlaða með áætlaða há­marks­drægni upp á rúma 250 km en líkt og á við um aðra raf­bíla ræður akst­urslagið mestu um ork­u­nýt­ing­una. Raf­mótor­inn í Ion­iq raf­bíln­um er 120 hest­öfl og togið 295 Nm. Há­marks­hraði er 165 km/​klst.

http://www.mbl.is/bill/frettir/2016/02/25/ioniq_rafbilathrenna_hyundai_i_genf/