Fara í efni

Hyundai ix35 FC bæði rafstöð og vatnsveita

Fréttir

frétt af visir.is

Sérfræðingar við Delft tækniháskólann í Hollandi kynntu á dögnum áhugaverða tilraun á vetnisbílnum Hyundai ix35 sem væntanlegur er í sölu hér á landi á næsta ári. Verkefnið fólst í því að sýna fram á að vetnisbílar geti líka þjónað sem rafstöð og vatnsveita auk umhverfisvæns hlutverks sem græns ökutækis. 

Í tilrauninni var sett innstunga á bílinn til að stinga rafmagnstækjum í samband við. Vetnisbílar framleiða allt í senn rafmagn, hita og hreint vatn úr vetni sem hægt er að nýta þær stundir sem bíllinn er ekki á ferðinni, hvort sem er heima, fyrir utan skólann eða vinnustaðinn. 

Bílar standa kyrrstæðir meirihluta sólarhringsins og í tilfelli vetnisbíla getur verið gott að nýta þessa eiginleika þeirra þegar þeir eru ekki á keyrslu. Hyundai ix35 getur framleitt 10 kW-stundir af rafmagni sem nægir til notkunar á meðalstóru heimili auk þess sem hægt er að nýta hreint vatnið sem verður til við framleiðsluna til drykkjar. 

Þar sem tilraunin er enn á þróunarstigi er enn of snemmt að segja til um það hvort hér sem komin fram ný og varanleg lausn sem boðin verði á almennum markaði með vetnisbílum.

http://www.visir.is/g/2017170829013/hyundai-ix35-fc-baedi-rafstod-og-vatnsveita