Fara í efni

Hyundai i10 besti borgarbíllinn 2021 að mati What Car?

Fréttir

Breski bílavefurinn What car? hefur útnefnt nýjan Hyundai i10 besta borgarbíl ársins 2021. Þetta var tilkynnt á árlegri verðlaunahátíð What car? sem fram fór á netinu fyrr í vikunni, þar sem i10 var lofaður fyrir hagkvæmni í rekstri, góðan tæknibúnað og ekki síst þægindi þar sem i10 þykir meðal annars einkar hljóðlátur.

Flestir kusu i10

Auk fyrrnefndra kosta Hyundai i10 sögðu dómararnir einnig frá því að á undanförnum tólf mánuðum hefði i10 farið hratt upp vinsældalistann meðal lesenda What car? þegar mjög margir nefndu hann sem einn af þeim sem kæmi sterklega til greina við næstu bílakaup í skoðanakönnun meðal lesenda. Þegar upp var staðið endaði Hyundai i10 í fyrsta sæti á listanum enda sá sem flestir þátttakendur í könnuninni sögðu að yrði næst fyrir valinu.

Einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki

Fáir bílar Hyundai hafa á undaförnum árum notið jafn mikilla vinsælda og Hyundai i10 sem hefur verði einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki mörg undanfarin ár. Síðastliðið sumar frumsýndi Hyundai á Íslandi nýjan og endurhannaðan i10 og hefur bíllinn aldrei verið jafn vel búinn og nú á öryggis- og þægindasviði auk þess að vera sérlega hagkvæmur í rekstri. Nýr Hyundai i10 kostar frá 2.350.000 krónum hjá Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ.