Fara í efni

Honda vann til þrennra Red Dot hönnunarverðlauna

Fréttir

Japanski bílaframleiðandinn Honda vann nýverið til þrennra Red Dot hönnunarverðlauna. Þar á meðal vann nýi rafbíllinn Honda e Best of the Best flokkinn sem þykir sérlega eftirsóknarvert. Honda e vann einnig flokkinn ,,Smart product" fyrir framúrskarandi hönnun. Valið kemur ekki á óvart enda hefur Honda e fengið mikla athygli fyrir hönnun sína síðan hann var fyrst kynntur til leiks. Heildarútlit þessa netta borgarbíls þykir sérlega fallega hannað. Þá eru ýmiss konar tæknilegir eiginleikar sem spila vel saman með flotti hönnun á Honda e. Má þar nefna háskerpumyndavélar sem leysa hliðarspegla af hólmi. Hurðarhúnarnir falla sléttir að hurðunum og skjótast fram þegar þarf að opna þær. Framljós, myndavélar og radar eru samþætt í einni heild­stæðri hönnun. Þess má geta að fyrstu Honda e bílarnir verða afhentir væntanlegum kaupendum í júlí

Þetta er fyrsti rafbíll Honda og er tæknilega mjög fullkominn. Drægi Honda E er 220 km samkvæmt WLTP staðlinum enda bíllinn hugsaður sem borgarbíll. Í ódýrari útfærslu verður hann búinn þremur skjám í mælaborði, 8,8 tommu skjá fyrir framan ökumann en tvo 12,3 tommu vinstra megin í mælaborðinu. Auk þess eru svo tveir minni sem sýna aftur með hliðum bílsins enda engir hliðarspeglar á Honda E eins og áður segir. Í dýrari útfærslunni kemur hann svo með 360° myndavél, stafrænum baksýnisspegli, sjálfvirkri stæðalögn, 376 watta hljóðkerfi með bassakeilu og 154 hestöfl í stað 136.

Þriðju verðlaun Honda á Red Dot féllu í hlut CBR1000RR-R Fireblade SP mótorhjólsins fyrir framúrskarandi hönnun. Honda stendur sem fyrr í fremstu röð í framleiðslu og hönnun mótorhjóla. Red Dot verðlaunin eru ein þau virtustu í hönnunarheiminum. Dómnefndina skipa 40 alþjóðlegir sérfræðingar í hönnun.