Fara í efni

Honda nær þriðja stigi í sjálfsaksturstækni

Fréttir

Honda hefur fengið leyfi japanskra yfirvalda til að framleiða bíl með þriðja stigs sjálfsaksturstækni. Það er í fyrsta skipti sem bifreið með þeirri tækni er leyfð til aksturs í venjulegri umferð.

Honda er því fyrsti bílaframleiðandinn til að fá að fjöldaframleiða bíl búinn þessari tækni. Þriðja stigs sjálfsaksturstæknin verður prófuð í fólksbílnum Honda Legend og stefnir japanski bílaframleiðandinn að því að bíllinn komi á markað í mars á næsta ári. Honda Legend verður þannig fær að taka sjálfvirkt fram úr öðrum bílum í þungri umferð. Kerfið hjá Honda ber heitið Traffic Jam Pilot.

Tæknistig sjálfsaksturs bíla eru fimm og er Honda Legend eins og áður með þriðja stigs sjálfvirkni en stig fimm þýðir að bíllinn sé alsjálfvirkur. Nokkrir bílaframleiðendur m.a. Tesla og General Motors eru komin með 2 stigs sjálfvirkni í sína bíla sem þýðir að Honda er komið fremst allra framleiðenda í þessari tækni.