Tvö ný fyrirtæki gengu til liðs við Bílgreinasambandð í þessum mánuði en um er að ræða Glitur Suðurlandsbraut 16 og Heklu hf Laugarvegi 174. Glitur er málningar og réttingaverkstæði sem leggur metnað sinn í að veita vandaða og góða þjónustu en fyrirtækið er með áratuga reynslu í sínu fagi. Sjá nánar á www.glitur.is
Með inngöngu Heklu hf í Bílgreinasambandið eru öll bifreiðaumboð landsins samankomin inna BGS. Hekla er eitt af leiðandi og stærstu bílaumboðum landsins en Hekla selur og þjónustar Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi. Sjá nánar www.hekla.is
Bílgreinasambandið býður þessi fyrirtæki velkomin í hóp fyrirmyndarfyrirtækja í bílgreininni.