Fara í efni

Haustsýning Mercedes-Benz

Fréttir

Haustsýning Mercedes-Benz verður haldin hátíðleg í Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag kl. 12-16. Til sýnis verður hin breiða og glæsilega lína Mercedes-Benz fólksbíla.

,,Við tökum vel á móti haustinu og bjóðum af því tilefni til veglegrar bílasýningar hér í sýningarsal Öskju. Við ætlum að sýna allan Mercedes-Benz fólksbílaflotann og kynna skemmtilegar tækninýjungar í bílunum sem kemur til viðbótar við framúrskarandi aksturseiginleika og hönnun sem bílarnir eru þekktir fyrir. Mercedes-Benz hefur verið að koma fram með nýjan og tæknivæddan öryggis- og akstursbúnað í bílum sínum að undanförnu sem sýnir þá miklu þróun sem á sér stað hjá þýska lúxusbílaframleiðandanum. Það eru spennandi tímar hjá Mercedes-Benz og fyrirtækið hefur á undanförnum misserum verið að kynna fjölda nýrra bíla og enn fleiri eru á leiðinni m.a. sportjepparnir GLE og GLC sem frumsýndir verða í haust. Við erum á fullu þessa dagana að taka niður forpantanir á GLC og GLE," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju.

Boðið verður upp á 20% afslátt af auka- og varahlutum í Mercedes-Benz bifreiðar meðan á sýningunni stendur á laugardag.