Haustgrill Kia verður haldið nk. laugardag 13. september kl. 12-16. Hinn fjölbreytti og margverðlaunaði bílafloti Kia verður að sjálfsögðu í aðalhlutverkinu í sýningarsal Bílaumboðsins Öskju að Krókhálsi 11.
,,Við ætlum að fagna haustinu sem er tími uppskeru og ætlum að eiga skemmtilegan dag hér í Öskju. Kia bílarnir hafa fengið mjög góða dóma fyrir fallega hönnun og sparneytni og þá fylgir 7 ára ábyrgð öllum nýjum Kia bílum sem er lengsta verksmiðjuábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á heiminum í dag. Þannig að nýr Kia bíll er í ábyrgð til 2021,” segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.
Margt skemmtilegt verður um að vera á sýningunni. Gestum verður boðið upp á pylsur, gos og ís auk þess sem andlitsmálun verður í boði fyrir börnin og trúðurinn Wally verður á svæðinu kl. 13.30-15.00.
Ýmis tilboð verða í gangi á meðan sýningu stendur og má þar nefna aukapakka kaupauka upp á 50 þúsund krónur sem fylgir með öllum nýjum Kia bílum sem keyptir eru á sýningunni. Þá verður boðið upp á sérkjör á fjármögnun til kaupa á nýjum Kia bíl. Einnig verður skemmtilegur myndaleikur í gangi þar sem iPad er í verðlaun.