Fara í efni

Hátæknivæddur A-Class frumsýndur

Fréttir

Nýr Mercedes-Benz A-Class var heimsfrumsýndur í Amsterdam á dögunum. Þetta er minnsti bíll Mercedes-Benz en hann hefur nú breyst talsvert í hinni upprunalegu hlaðbaksútgáfu (hatchback) þ.e. fjögurra dyra með afturhlera. Síðar á árinu verður A-Class auk þess í boði í glænýrri stallbaksútfærslu (sedan) en þannig hefur hann aldrei verið framleiddur áður. Báðar útfærslur eru væntanlegar til Íslands í lok sumars.

A-Class hefur stækkað aðeins, breikkað og lengst svo pláss fyrir farþega og farangur er því meira en í forveranum. Innanrými bílsins er sérlega vel hannað og vandað og tæknin í bílnum er byltingakennd fyrir bíl í þessum stærðarflokki. A-Class er orðin hátæknivæddur eins og stærri lúxusbílar Mercedes-Benz, E-Class og flaggskipið S-Class. A-Class er nú m.a. kominn með hinu magnaða Intelligent Drive sem er í S-Class bílnum og veitir ökumanni og farþegum mikil þægindi í akstrinum.

Innanrýmið svipar til stærri lúxusbíla Mercedes-Benz með stórum og breiðum skjá. Þá er bíllinn með hinu nýja og háþróaða raddstýringarbúnaði Hey Mercedes sem þýski lúxusbílaframleiðandinn hyggst setja í alla nýja bíla sína á næstunni. Tvær vélar verða í boði í hinum nýja A-Class til að byrja með. Annars vegar A 180d með 116 hestafla dísilvél sem er 10,8 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. Togið er 260 Nm og eyðslan er frá 4,1 l/100 km. Hins vegar er A 200 með 163 hestafla bensínvél en hann er 8 sekúndur í hundraðið. Togið er 250 Nm og eyðslan er frá 5,1 l/100 km. Innan skammst kemur síðan A 250 sem er talsvert aflmeiri bíll. A-Class kemur einnig í AMG útfærslu en það verður þó ekki fyrr en um næstu áramót.