Fara í efni

Gott gengi eigenda nýrra bíla

Fréttir

Töluverð umræða hefur verið um gengisstyrkingu krónunnar að undanförnu og hvort áhrifa þennar gæti í verði á innfluttum vörum. Því hefur þannig verið haldið fram að áhrifin sjáist ekki í verði nýrra bifreiða. Horfi menn til ákveðinna gagna Hagstofunnar gæti þessi fullyrðing átt við rök að styðjast: samkvæmt Hagstofunni er verð á nýjum bílum 7% hærra en fyrir ári þegar horft er til vísitölunnar. En eins og oft áður er nauðsynlegt að kíkja undir húddið áður en lengra er haldið.

Skattarnir skýra hækkunina

Um áramótin breytti ríkið gjöldum á bíla. Vörugjöld á bensín- og dísilbíla hækkuðu og styrkur til rafbílakaupa lækkaði. Bílaverð í vísitölunni hækkaði því um 12,3% í janúar einum: bensín- og dísilbílar um 19,8%, tvinnbílar um 16,3% og rafbílar um 6,4%.

Heimildir: Hagstofa Íslands (vísitala 071 Kaup á ökutækjum), Seðlabanki Íslands (miðgengi). Bílavegið gengi: vegið með nýskráningum 2026 eftir tegund.

Eins og myndin sýnir þá stóð verðið í stað samkvæmt vísitölumælingu Hagstofunnar frá byrjun febrúar fram á sumar. Síðan þá hefur vísitalan lækkað í hverjum mánuði. Rímar þessi þróun ágætlega við upplifun þeirra sem hefur átt í bílaviðskiptum undanfarna mánuði. Án skattabreytinganna er bílaverð nú 4,8% lægra en um áramót. Hækkunin sem mælist í ár stafar því af ákvörðunum stjórnvalda, ekki umboðanna.

Ekki allt talið í krónum og evrum

Algengt er að bera bílaverð saman við gengi krónunnar gagnvart evru, sem hefur styrkst um 6,7% frá janúar. En um 40% nýrra bíla á árinu koma frá Kína og Kóreu, til dæmis BYD, MG, Kia og Hyundai. Gagnvart kínversku júani og kóreska vonninu hefur krónan veikst á árinu, um 2% og 7%.

Ef gengið er vegið eftir því hvaðan bílarnir sem seljast koma hefur krónan aðeins styrkst um 2–3% á árinu (brotna línan á myndinni). Verð á innfluttum bílum hefur lækkað meira en það. Ein skýring er að styrking krónunnar árið 2025 hafi skilað sér með töf, því bílar eru oft pantaðir mánuðum fyrir afhendingu.

Í tilfelli rafbíla sem eru framleiddir í Asíu er allur gangur á því hvort að viðskiptin eru gerð upp í gjaldmiðli upprunalandsins eða öðrum gjaldmiðlum. Það breytir þó ekki heildarmyndinni sem sýnir skýrt að verð á nýjum bílum hefur lækkað á síðari hluta ársins.

Undirvísitala Hagstofunnar ofmetur hækkunina hjá heimilum

Vísitala Hagstofunnar fyrir bifreiðaverð vigtar orkugjafa eftir meðaltali allra nýskráninga síðustu þriggja ára, þar með talið bílaleigubíla. Þetta skekkir hina raunverulegu þróun. Heimili kaupa nú rafmagnsbíla í miklu meira mæli en áður og eiga þau áhrif því enn eftir að koma inn af fullum þunga í vísitöluna eins og Hagstofan mælir hana.

Heimildir: nýskráningar 2026 í almennri notkun; vægi í vísitölunni er mat út frá verðbreytingum sem Hagstofan birti fyrir janúar 2026.

Skattahækkunin lenti þyngst á bensín- og dísilbílum, sem heimilin kaupa varla. Með samsetningu heimilanna hefðu skattabreytingarnar hækkað bílaverð um 8% í stað 12%. Bílaverð hefði þá hækkað um 3% á síðustu 12 mánuðum en ekki 7%.

Rafmagnsbíll sem dregur vagninn

Fullyrðingin um að gengisstyrkingin skili sér ekki í bílaverð stenst ekki árið 2026. Hækkun ársins stafar af skattabreytingum stjórnvalda. Að þeim frátöldum hefur bílaverð lækkað um 4,8%, meira en gengið gagnvart upprunalöndum bílanna gaf tilefni til. Auk þess mælir vísitalan hækkunina hærri en hún varð í raun hjá heimilum, því hún vegur bensín- og dísilbíla mun þyngra en heimilin kaupa þá.

Fyrirvarar: öll janúarhækkunin er talin til skattaáhrifa. Vægi orkugjafa í vísitölunni er mat, því Hagstofan birtir það ekki.

 

Heimildir