Fara í efni

GLC sportjeppinn frumsýndur

Fréttir

Nýr Mercedes-Benz GLC verður frumsýndur í Bílaumboðinu Öskju á lagardag kl. 12-16. GLC hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og ljóst að margir bíða spenntir eftir að sjá bílinn afhjúpaðan í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsinum. GLC var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt sem nú stendur yfir.

,,Við höfum fundið fyrir mjög miklum áhuga varðandi GLC og nú þegar hafa all nokkrir bílar verið seldir fyrirfram hjá Öskju. Við höfum haft nóg að gera að svara fyrirspurnum varðandi sportjeppann þannig að við bíðum spennt eftir að frumsýna hann," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz hjá Öskju.

Þessi kraftmikli lúxus sportjeppi kemur í stað hins vinsæla GLK. Hinn nýi GLC er fallega hannaður og með mun straumlínulagaðri og sportlegri línur en GLK. Framendinn er svipsterkur með áberandi framljósum og afturhlutinn hallar aftur og ber keim af coupe lagi. Innanrýmið er fallegt og vandað og þar fara saman aukið rými, meiri þægindi og nýjasta tækni.

Hinn nýi GLC fæst bæði með aflmiklum og sparneytnum dísil- og bensínvélum og eldsneytiseyðslan lækkar að meðaltali um 19% miðað við fyrri gerð. Öflug Plug-in Hybrid útfærsla er væntanleg á næsta ári.

Hin byltingarkennda níu gíra 9G-TRONIC sjálfskipting verður staðalbúnaður í öllum útfærslum GLC. DYNAMIC SELECT gerir ökumanni kleift að velja milli fimm aksturskerfa sem laga eiginleika bílsins að aðstæðum hverju sinni. GLC verður að sjálfsögðu í boði með 4MATIC fjórhjóladrifinu. Þá verður hægt að fá fjölmarga aukahlutapakka í bílinn eins og venjan er hjá Mercedes-Benz.