Styttast fer í kynningu á nýja XC90 jeppanum frá Volvo og fyrirtækið birti í dag fyrstu myndir af innanrými hans. Það kemur kannski ekki mikið á óvart að þar ræður glæsileikinn ríkjum, en einnig sænsk naumhyggja.
Hann er sannarlega sænskur og meira að segja er sænski fáninn bróderaður í sætin. Þurft hefur að höggva niður nokkur tré til að ljá innanrými hans glæsileika og sjálfskiptihnúðurinn er úr kristal frá Orrefors í Svíþjóð. Það er þó ekkert naumhyggjulegt við flennistóran snertiskjáinn fyrir miðju mælaborðsins. Hann er hærri en hann er breiður, líkt og í Tesla Model S, en það er sjaldséð í bílum.
Mælaborðið sjálft er stafrænt að sjá. Þrjár sætaraðir eru í bílnum og stilla má hvert sæti fyrir sig í annarri sætaröðinni og fínt pláss á að vera fyrir farþega í þeirri öftustu. Volvo XC90 verður endanlega sýndur umheiminum í ágúst, en hætt er við því að Volvo eigi eftir að sýna meira af bílnum í hæfilegum skömmtum og þá ekki síst af endanlegu ytra útliti bílsins segir í frétt á visir.is