- 38,1% aukning í nýskráningum fólksbíla í nóvember samanborið við fyrra ár
- Alls voru nýskráðir 413 nýir fólksbílar í nóvember sl.
- Alls nýskráðir 9133 fólksbílar á fyrstu 11 mánuðum ársins.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1–30 nóvember sl. jókst um 38,1% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili eru 413 stk. á móti 299 í sama mánuði 2013 eða aukning um 114 bíla. Samtals hafa verið skráðir 9133 fólksbílar á fyrstu 11 mánuðum ársins og er það 30,1% aukning frá fyrra ári.
Af ofangreindum tölum má sjá að enn er góð sala á nýjum fólksbílum. Ekki hefur dregið úr jákvæðri þróun í sölu nýrra bíla nú á síðustu mánuðum ársins þrátt fyrir að þegar ágúst sleppir er búið að afgreiða flest alla bíla sem fara til bílaleigna.
Helsta ástæða þessa er að endurnýjunarþörfin er orðin mjög brýn þar sem bílafloti landsmanna er orðin sá elsti í Evrópu. Styrking og stöðugt gengi krónunnar sem og mikil vinna innflutningsaðila hefur skilað því að nýjir bílar bjóðast neytendum á góðum verðum í dag. Því er gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld fari ekki útí breytingar á ytra umhverfi greinarinnar nema með góðum fyrirvara en nú þegar er búið að leggja grunn að næsta ári í pöntunum á nýjum bílum fyrir bílaleigur, fyrirtæki og almenning. Það er fyrst nú sem starfsfólk í bílgreininni sér frammá hugsanlega fjölgun starfa og aukinna umsvifa inna greinarinnar segir Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.