Fara í efni

Forsala Peugeot 3008 PHEV

Fréttir
Peugeot 3008 PHEV
Peugeot 3008 PHEV

Langdrægur 300 hestafla tengiltvinnjeppi frá Peugeot

Brimborg hefur sett í forsölu nýjan Peugeot 3008 SUV PHEV sparneytinn tengiltvinnjeppa með val um tvær aflrásir. Annars vegar 225 hestöfl með framdrifi og hins vegar 300 hestöfl með fjórhjóladrifi og í báðum tilvikum með 8 gíra sjálfskiptingu, 5 ára heildarábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu. Peugeot 3008 sló í gegn á Íslandi og nú kemur hann í tengiltvinnútgáfu með veghæð upp á 22 cm. og drægni á 100% hreinu rafmagni allt að 59 km. og snögga rafhleðslu þar sem hægt er að fullhlaða á 1:45 klst. Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er aðeins 1,6 til 2,2 l/100 km. og CO2 losun aðeins frá 33 til 49 gr. per km. skv. WLTP mælingu.

Sala tengiltvinnjeppa hefur farið vaxandi víða um heim og því verður takmarkað magn í boði á Íslandi en Brimborg hefur tryggt ákveðinn fjölda bíla sem eru nú til forsölu í nýjum vefsýningarsal á brimborg.is. Í fyrstu verður Peugeot 3008 SUV PHEV í boði í GT útfærslu hlaðinn staðalbúnaði auk 300 hestafla vélar og fjórhjóladrifs. Hann er knúinn áfram af annars vegar bensínvél og hins vegar tveimur rafmagnsvélum sem skila samanlagt 300 hestöflum, miklu afli og einstökum aksturseiginleikum. Hægt að nota fjórhjóladrifið á 100% rafmagnsstillingu.

Peugeot 3008 er margverðlaunaður og hefur fengið sérstakt lof fyrir einstaka hönnnun að utan sem innan þar sem nútímaleg i-Cockpit innrétting er í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af tækni þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns.

Peugeot 3008 SUV PHEV kostar frá 5.230.000 kr. og er nú þegar fáanlegur í forsölu í vefsýningarsal Brimborgar. Nánari upplýsingar er á finna á vef Peugeot á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur, á bennyh@brimborg.is eða í síma 515-7802.

Smelltu hér til að kynna þér Peugeot 3008 PHEV!