Fara í efni

Forsala hafin á Kia Niro EV

Fréttir

Forsalan hafın á Kia Niro EV

Bílaumboðið Askja hóf í dag forsölu á nýjum og spennandi rafbíl Kia Niro EV. Þetta er þriðja kynslóð Kia Niro sem hefur verið einn vinsælasti bíll Kia um allan heim undanfarin ár. Hér á landi hefur hann verið söluhæsta gerð Kia.

Kia Niro EV er hreinn 100% rafbíll. Bíllinn breytist mikið í útliti miðað við núverandi kynslóð. Nýr Niro fær uppfært útlit að utan og innan sem tekið er eftir. Hönnunin er framúrstefnuleg og djörf og ber að mörgu leyti keim af HabaNiro hugmyndabílnum sem kynntur var 2019.

Framhluti Niro er mikið breyttur með nýju og fallega hönnuðu grilli og LED ljósum sem gefa bílnum voldugt útlit. Afturhluti bílsins er dínamískur með fallega hönnuðum LED ljósum og hárri gluggalínu. Bíllinn er stærri en áður og býður upp á meira pláss. Farangursrýmið er 451 lítrar eða allt 15 lítrum stærra en áður.

Sjálfbærni höfð að leiðarljósi

Innanrýmið er nútímalegt og laglega hannað. Vandað er til verka í efnisvali þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Bíllinn er mjög tæknivæddur og sést það best á 10,25" Digital aðgerðaskjá þar sem boðið er upp á upplýsingar um allt sem viðkemur akstrinum og afþreytingu í gegnum snjallsíma. Nýr Kia Niro verður búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum Kia. Verðið á nýjum Kia Niro er frá 6.290.777 kr.