Fara í efni

Fjölskyldudagur Kia á morgun

Fréttir

Bílaumboðið Askja býður til fjölskyldudags Kia á morgun, laugardag að Krókhálsi 11. Fjölbreytt dagskrá verður í boði frá kl. 12–16 fyrir gesti á öllum aldri.

Söngkonan vinsæla Salka Sól tekur lagið og situr fyrir á myndum með þeim sem vilja. Hin breiða lína Kia bíla verður að sjálfsögðu á staðnum og gefst gestum möguleiki á að reynsluaka bílum. Enginn ætti að fara svangur úr Öskju því nóg verður af pylsum á grillinu. Þá verður hoppukastali fyrir börnin, auk þess sem hægt verður að snúa Lukkuhjóli Kia og vinna glæsilega vinninga.

,,Við ætlum að halda skemmtilega fjölskylduhátíð á laugardaginn og vonumst til að sjá sem flesta. Það verður nóg um að vera og við erum mjög stolt af að kynna hinn vel heppnaða bílaflota Kia. Við finnum fyrir miklum meðbyr enda Kia næst mest seldi bíllinn á síðasta ári og heldur þeim vinsældum á þessu ári," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

,,Það verður 25% afsláttur verður af Kia aukahlutum og frí 7 punkta skoðun fyrir Kia eigendur sem er aðeins í boði á laugardag. Einnig bjóðum við 15% afslátt af varahlutum. Þannig að það er um að gera að nýta tækifærið og búa bílinn undir veturinn," segir Þorgeir.