Fara í efni

Einstaklingar kaupa fleiri bíla en í fyrra

Sölutölur

Alls seldust 694 fólksbílar í febrúar og er að það 13,4% undir sölunni í febrúar 2019. Samtals hafa selst 1402 fólksbílar frá áramótum en á sama tímabili í fyrra voru þeir 1647 talsins og því er uppsafnaður samdráttur frá áramótum 14,9%.

Hinsvegar, ef skipting sölunnar frá áramótum er skoðuð með tilliti til mismunandi kaupendahópa þá sést að sala til einstaklinga hefur verið með ágætum þar sem hún hefur aukist um 1,0% frá sama tímabili 2019. Samdrátturinn er því fyrst og fremst tilkominn vegna minni sölu til fyrirtækja en almenn fyrirtæki (án bílaleigu) hafa keypt 1,8% færri bíla frá áramótum og þá hafa 41,1% færri bílaleigubílar verið skráðir miðað við sama tíma í fyrra.

Vistvænir bílar halda áfram að auka hlutdeild sína af heildarsölunni og hafa þeir verið yfir helmingur sölunnar frá áramótum, eða 51,1% af sölu allra fólksbíla. Hreinir rafmagnsbílar tróna þar á toppnum með 19,6% hlutfall og þar á eftir eru tengiltvinnbílar með 17,2% hlutdeild, hybrid bílar með 13,3% og metanbílar með 0,9%. Það er því ljóst að þessar tegundir bíla eru að sækja mikið á og líklegt að svo verði áfram þar sem úrval tegunda slíka bíla eykt hratt þessa dagana og mun gera það enn frekar á næstu misserum.