Fara í efni

Daimler fjárfestir í Proterra

Fréttir

Daimler fjárfestir í Proterra

Atvinnubíladeild Daimler, sem framleiðir Mercedes-Benz atvinnubíla, hefur fjárfest í bandaríska fyrirtækinu Proterra. Þetta var tilkynnt á IAA atvinnubílasýningunni í Hannover fyrir stuttu.

Proterra er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu rafmagnsstrætisvagna. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og er með höfuðstöðvar í Greenville í Suður-Kaliforníu. Fyrirtækið hefur náð miklum árangri í framleiðslu á rafknúnum strætisvögnum.

Daimler mun nota nýjustu rafhlöður og tæknivæddan drifbúnað frá Proterra í atvinnubíla Mercedes-Benz. Samstarfið mun m.a. fela í sér framleiðslu á rafknúnum skólabílum fyrir Bandaríkjamarkað. Mikill hugur er í atvinnubíladeild Daimler hvað varðar rafknúna framtíð atvinnubíla Mercedes-Benz og fyrirtækið hefur nú þegar byrjað framleiðslu á fyrstu rafknúnu atvinnubílum sína eCitaro og eActros.

Mercedes-Benz mun einmitt sýna þessa nýjustu rafknúnu atvinnubíla sína á IAA atvinnubílasýningunni í Hannover þar sem rafknúni strætisvagninn eCitaro og rafknúni flutningabíllinn eActros verða í sviðsljósinu. Báðir bílarnir eru 100% hreinir rafbílar með engan úblástur og eru þ.a.l. einnig sérlega hljóðlátir.

Mercedes-Benz varð fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum til að kynna rafmagnsatvinnubíl á IAA atvinnubílasýningunni í Hamborg árið 2016. Mercedes-Benz er stærsti atvinnubílaframleiðandi heims og hyggst á næstunni koma fram með fleiri atvinnurafbíla, m.a. sendibílana vinsælu Vito og Sprinter. Þeir munu bera heitin eVito og eSprinter og verða hreinir rafbílar.