Fara í efni

Citroën keyrir á fullu á rafmagnið

Fréttir

Franski bílaframleiðandinn Citroën keyrir nú á fullu á rafmagnið og stefnir að því að allir bílar Citroën verði rafmagnaðir fyrir árið 2025. Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni. Nú stígur Citroën mikilvægt umhverfisskref til rafvæðingar með nýjum Citroën C5 Aircross PHEV tengiltvinn rafbíl. Hann verður frumsýndur í lok október á einstaklega hagstæðu verði en forpantanir hefjast á miðnætti miðvikudaginn 7. október í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.

Háfættur, rúmgóður með hárri sætisstöðu og byltingarkenndri fjöðrun

Citroën kynnir rúmgóða tengiltvinn rafbílinn Citroën C5 Aircross PHEV, langdrægan á rafmagni og einstaklega sparneytinn á bensíni sem hentar vel í langkeyrslur með alla fjölskylduna og fullt af farangri. Íslenskar aðstæður vefjast ekki fyrir Citroën C5 Aircross PHEV en háfættur svífur hann 23 sentimetrum yfir ójöfnur íslenskra vega á byltingarkenndri fjöðrun. Hábyggt jeppalagið og há sætisstaða skapa þægilegt aðgengi og þegar inn er komið blasir við notendavænt, rúmgott innra rými með breiðum, mjúkum framsætum og þremur, stökum, jafnbreiðum aftursætum. Aftursætin eru á sleða og rúma auðveldlega þrjá barnastóla. Farangursrýmið er 460-600l, það stærsta í þessum flokki bíla og rúmar auðveldlega golfsettið eða barnavagn auk annars farangurs.

Hin byltingarkennda fjöðrun Citroën C5 Aircross PHEV er afar einföld en snjöll og áhrifarík og virkar sérlega vel á ójöfnur í vegum en einnig á hvassar íslenskar holur þar sem högg geta verið hörð. Hefðbundinn fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar en Citroën bætir við vökvastoppara að ofan og neðan í demparanum sjálfum.

8 gíra sjálfskipting, kraftmikill með 225 hestöfl, sparneytinn og umhverfisvænn

Citroën C5 Aircross PHEV er þægilegur í akstri með þremur akstursstillingum, Electric, Hybrid og Sport, með 8 gíra sjálfskiptingu og kraftmikilli aflrás sem samanlagt er 225 hestöfl sem sækir afl sitt bæði úr 45 hestafla rafmótor og 1,6 lítra, 180 hestafla, bensínvél. Þrátt fyrir mikið afl er Citroën þekktur fyrir einstaklega lágan rekstrarkostnað og C5 Aircross PHEV er þar engin undantekning. Það kostar aðeins um 220 kr. að fylla 13,2 kWh drifrafhlöðuna af íslenskri orku og meðaleyðsla á bensíni er aðeins 1,6 lítrar per 100 km, CO2 losun aðeins 32 gr per km* auk þess sem bifreiðagjöldin eru í lægsta flokki.

* Skv. WLTP mælingu.

Allur daglegur akstur eingöngu á rafmagni

Það tekur aðeins örskot að hlaða drifrafhlöðu Citroën C5 Aircross PHEV með íslenskri raforku því hann er fáanlegur með öflugri 7,4 kW hleðslustýringu. Stærð rafhlöðunnar er 13,2 kW og drægni hennar í 100% rafmagnsstillingu kemur honum 55 km á hreinu rafmagni sem er vel umfram 40 km daglegan meðalakstur á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að fullhlaða heima eða í vinnu á innan við 2 tímum. Einfalt er hafa yfirsýn yfir hleðslustöðu bílsins og virkja, stöðva eða tímasetja hleðslu í MyCitroën®appinu.

Ríkulegur staðalbúnaður og fjarstýrður forhitari

Citroën C5 Aircross PHEV er einstaklega vel búinn þar sem m.a. má finna forhitun sem tryggir alltaf heitan og notalegan bíl. Forhitunin er fjarstýrð með MyCitroën appinu og einfalt að tímastilla fyrir alla vikudagana fram í tímann, hvort sem er í appinu eða á skjánum í mælaborðinu. Einnig er Citroën C5 Aircross PHEV með GPS vegaleiðsögn, veglínuskynjun, hraðastilli, bakkmyndavél, nálægðarskynjurum að framan og aftan, lyklalausu aðgengi og þráðlausri símahleðslu svo fátt eitt sé nefnt. Citroën C5 Aircross PHEV er búinn 20 aksturskerfum sem aðstoða ökumann við akstur m.a. ef þreyta gerir vart við sig. Kerfi bílsins greina hugsanlegar hættur og lágmarka þannig hættu á árekstri.

Einstaklega hagstætt verð og hagstæð græn fjármögnun

Fyrstu Citroën C5 Aircross PHEV bílarnir eru nú á leiðinni til Íslands og mun Brimborg bjóða hann á einstaklega hagstæðu verði eða aðeins frá 5.490.000 kr. Brimborg býður bílaskipti úr eldri bíl upp í nýjan Citroën C5 Aircross PHEV sem gildir sem útborgun og með hagstæðri grænni fjármögnun er mánaðargreiðslan aðeins 49.977 kr. á mánuði. Með bílaskiptum úr eldri bíl í nýjan þá sparast mikið í eldsneytiskaupum og lægri bifreiðagjöldum sem léttir mánaðargreiðsluna enn frekar. Mánaðargreiðslan í þessu dæmi miðast við uppítöku á eldri bíl á 2.000.000 kr. og 8 ára lán og er hlutfallstala kostnaðar í dæminu 5,66%.

Hleðslustöð er auðvelt að fjármagna með bílakaupunum og virðisaukaskattur er endurgreiddur bæði af hleðslustöðinni og uppsetningu hennar.

Örugg gæði Citroën með lengri ábyrgð hjá Brimborg

Örugg gæði Citroën C5 Aircross PHEV eru staðfest með víðtækri 5 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir.

Forpantanir hefjast 7. október á verði frá 5.490.000 kr.

Brimborg mun byrja að taka við forpöntunum á Citroën C5 Aircross PHEV á miðnætti miðvikudaginn 7. október í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg og frumsýning verður síðar í mánuðinum. Verðið er einstaklega hagstætt eða aðeins frá 5.490.000 kr. með ríkulegum staðalbúnaði.

Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna alla Citroën C5 Aircross PHEV tengiltvinn rafbíla sem eru væntanlegir til landsins. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Citroën.

Helstu mál og stærðir

  • Lengd: 4,5 m
  • Breidd m speglum: 2,090 m
  • Hæð: 1,695 m
  • Stærð: á skott 460 -600 lítrar
  • Veghæð: 23 cm
  • Eigin þyngd: 1.819 kg
  • Dráttargeta: 1.300 kg (eftirvagn m. hemlun)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Citroën C5 Aircross PHEV er að finna á vef Citroën á Íslandi | Brimborg eða hjá sölustjóra Citroën á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur @Benný Ósk Harðardóttir eða í síma 515 7802.