Fara í efni

Brimborg frumsýnir nýjan Ford Focus á laugardaginn 3. nóvember.

Fréttir

Brimborg frumsýnir nýjan Ford Focus á laugardaginn 3. nóv milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford við Bíldshöfða 6 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri.
 
Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim.

Nýr Ford Focus markar nýja tíma  hvað varðar tækni, þægindi, pláss og akstursupplifun í flokki fólksbíla. Í 20 ár hefur Ford Focus er hefur verið þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika og framúrskarandi gæði en er núna enn betri en áður. Í nýjum Focus er hægt að velja um þrjár akstursstillingar sem breyta aksturseiginleikum mikið, hann fær til dæmis áberandi mikla sportbílaeiginleika í sportstillingunni.

Rík áhersla hefur verið lögð á allan öryggisbúnað og má nefna að núna er staðalbúnaður árekstrarvari að framan sem nemur einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari og umferðaskiltalesari svo fátt eitt sé nefnt. 

Fjölskyldubíllinn Ford Focus er glæsilegri og plássmeiri en nokkru sinni fyrr. Hann er ríkulega búinn, með einni bestu akstursaðstoð sem Ford hefur gert til þessa, með fimm stjörnu öryggi og Bluetooth samskiptakerfi. Tengi og afþreyingarmöguleikar eru meðal annars raddstýrðu SYNC 3 hljómtæki með snertiskjá og FordPass Connect, einnig er fáanlegt þráðlaus hleðsla, B&O hljómtæki. Apple CarPlay og Android Auto er einnig staðalbúnaður.