Viðhald gatna er ein af frumskyldum sveitarfélaga og þar með Reykjavíkurborgar en þessa skyldu hefur meirihlutinn í borginni vanrækt í mörg ár,“ segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en hann bar upp þá tillögu í gær að framkvæmdum yrði hætt á Grensásvegi og það fé sem sparaðist yrði notað til viðgerða á götum Reykjavíkur.
„Ástandið er slæmt á götum Reykjavíkurborgar en það hefur ekki komið til á einni nóttu. Í kjölfar bankahrunsins var minna lagt til gatnagerðar og viðhalds en áður. Sérfræðingar vöruðu okkur þá við að slíkan sparnað væri í mesta lagi hægt sækja í þrjú ár en þá þyrfti að bæta í fjármagnið aftur og verja hærri upphæð en áður til að ná upp ástandi kerfisins.“
Kjartan segir það hins vegar ekki hafa verið gert. „Þvert á ráðleggingar sérfræðinga var minni fjármunum varið í gatnakerfið árið 2011. Þó var eitthvað bætt í næstu fjögur árin en það dugði ekki einu sinni til að halda í horfinu.“
S. Björn Blöndal, borgarfulltrúi Bjartrar framtíðar og staðgengill borgarstjóra, veitti Kjartani Magnússyni andsvar og viðurkenndi að ástand gatna væri erfitt í Reykjavík. Slitið sagði hann tilkomið vegna óhagstæðs veðurs og aukningar á umferðog þá hefði sparnaður vissulega leitt til þess að vegakerfið væri ekki eins og berst verður ákosið. Í umræðunni sakaði hann Kjartan um ómálefnalegan málflutning og sagði m.a. enn eina útgjaldatillöguna koma frá Sjálfstæðisflokknum og Kjartani.