Fara í efni

Björgvin Páll fær Mercedes-Benz bifreið til að aka á milli grunnskóla

Fréttir

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur sett af stað forvarnar- og fræðsluverkefni í grunnskólum landsins. Verkefnið ber nafnið Vopnabúrið og er fyrirlestrarröð fyrir nemendur, kennara og foreldra. Björgvin Páll er löngu landskunnur fyrir afrek sín sem landsliðsmarkvörður í handbolta en hann átti sjálfur ekki auðvelda æsku og þurfti því að ryðja ýmsum hindrunum úr vegi og hafa mikið fyrir því að ná eins langt og hann gerði.

,,Ég hef mikinn áhuga á því að nýta mína reynslu til að hjálpa börnum og unglingum sem standa frammi fyrir sömu áskorunum og ég gerði. Ástandið er ekki frá­bært, sér­stak­lega á börn­un­um okk­ar“ seg­ir Björg­vin Páll. Þar vís­ar hann til ný­legra rann­sókna á and­legri líðan í tengsl­um við far­ald­ur kór­ónu­veirunn­ar.

Björg­vin Páll mun til að byrja með halda fyr­ir­lestra sína í skól­um í Kópa­vogi þar sem ræt­ur hans liggja en hann hef­ur tjáð sig um æsku sína þar sem hann lenti í mikl­um erfiðleik­um og fyr­ir skömmu gaf hann út bók­ina Án filters þar sem hann seg­ir frá reynslu sinni. Mark­miðið er að ná til ung­linga sem eiga á hættu að lenda í erfiðleik­um og neyslu, mynda tengsl við þá og freista þess að beina þeim inn á rétt­ar braut­ir í líf­inu. Verk­efnið er tví­skipt: ann­ars veg­ar er það Vopna­búrið og Við sem lið en í það ætl­ar Björg­vin Páll að safna saman krökk­um til að vinna per­sónu­lega með.

Bílaumboðið Askja lætur Björgvin Pál fá afnot að Mercedes-Benz bifreið til að sinna verkefninu og aka á milli grunnskóla landsins. ,,Það er okkur hjá Öskju mikil og sönn ánægja að geta stutt við bakið á þessu góða málefni" segir Arna Rut Hjartardóttir, markaðsstjóri Mercedes-Benz.