Fara í efni

Bílasýning í Heklu

Fréttir

 

 

Það verður allsherjar bílaveisla laugardaginn 6. janúar, milli klukkan 12 og 16, þegar Hekla heldur sína árlegu bílasýningu í glæsilegum salarkynnum við Laugaveg 170 – 174.

Til sýnis verður allt það nýjasta og ferskasta frá Audi, Mitsubishi, Skoda og Volkswagen en aðalnúmer dagsins eru Skoda Karoq, Volkswagen T-Roc, Polo, Skoda Octavia RS245 og Octavia Scout.

Beðið hefur verið eftir Skoda Karoq með ofvæni. Hann er einstaklega rúmgóður, glæsilega útbúinn með allt að 1,630 lítra farangursrými, LED framljós og er fyrsti bíllinn frá Skoda sem hægt er að fá með stafrænu mælaborði. Karoq státar af einum virtustu bílaverðlaunum Evrópu, Golden Steering Wheel, og er með fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.

Volkswagen T-Roc er spánýr sportjeppi sem skartar hönnun sem vekur eftirtekt. Hann fæst bæði fjór­hjóla- og fram­hjóla­drif­inn, bein­skipt­ur og sjálf­skipt­ur. Véla­úr­valið spann­ar allt frá 115 hestafla þriggja strokka vél upp í 190 hestafla bens­ín­vél. Hann er bú­inn nýjustu tækni og búnaði og er fá­an­leg­ur í sautján lit­um, með hvítu eða svörtu þaki.

Sjöttu kynslóðar Volkswagen Polo hefur verið beðið eftir í nokkurn tíma og þykir hún hafa heppnast einkar vel en Polo fagnar 42 ára afmæli sínu um þessar mundir. Polo hefur stækkað töluvert, er sportlegur og ljómar af sjálfsöryggi.

245 hestafla töffarinn Skoda Octavia RS245 er kraftmesta Octavian sem framleidd hefur verið. Fjölskyldubíllinn Skoda Octavia Scout hefur fengið andlitslyftingu, er með aukna veg hæð og er stútfullur af tæknilausnum.

Volkswagen leggur sitt lóð á vogarskálarnar í umhverfismálum og hefur nýtt ár með verðlækkun á vistvænum bílum. Afslátturinn er misjafn eftir tegundum en er allt að 15%. Úr nógu er að velja því Volkswagen býður átta bíla sem ganga fyrir rafmagni og metan. Að auki teflir Volkswagen fram miklu úrvali af glænýjum gerðum á borð við sjö sæta Tiguan Allspace og Volkswagen Arteon.

Audi er einnig í vistvænu stuði og býður einstaklega vel útbúinn Audi Q7 e-tron með 700.000 kr. afslætti. Q7 e-tron gengur fyrir rafmagni og dísil og er gríðarlega vinsæll og vistvænn kostur fyrir þá sem er umhugað um sitt ytra og innra umhverfi.

Þjónustan er í fyrirrúmi hjá Mitsubishi sem kynnir tilboð á vinsælasta jepplingi Íslands árið 2017, Mitsubishi Outlander PHEV. Öllum seldum Outlander PHEV fylgir nú frí þjónustuskoðun í tvö ár en hann kemur einnig með fimm ára ábyrgð eins og aðrir fólksbílar Heklu.

Auk úrvals bíla verður margt um að vera í öllum sýningarsölum. CrossFit kempan Annie Mist Þórisdóttir skorar á gesti í skemmtilegum þrautum. Í boði verður ljúfmeti frá Dunkin Donuts og rjúkandi kaffi frá Kaffitár auk þess sem veltibíllinn vinsæli og eitursnjallt blöðrulistafólk verður á staðnum.