- 58% aukning í nýskráningum fólksbíla í september samanborið við fyrra ár
- Alls voru nýskráðir 553 nýir fólksbílar í ágúst sl.
- Alls nýskráðir 8169 fólksbílar á fyrstu 9 mánuðum ársins.
Sala á nýjum fólksbílum frá 1–30 september sl. jókst um 58% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili eru 553 stk. á móti 350 í sama mánuði 2013 eða aukning um 203 bíla.
Samtals hafa verið skráðir 8169 fólksbílar á fyrstu 9 mánuðum ársins og er það 30,7% aukning frá fyrra ári.
Fjöldi bílaleigubíla af heildar nýskráningu er 4279 það sem af er árinu eða 52%
Í september sl. voru nýskráðir 26 bílaleigubílar eða 4,7% af heildar nýskráningum mánaðarins
Salan nýrra bíla hefur verið góð það sem af er ári sem og sala notaðra bíla.
Aukning hefur verið í nýskráningum fólksbíla til einstaklinga og fyrirtækja allt árið en þegar komið er frammá þennan árstíma er búið að afgreiða stærsta hluta af þeim bílum sem fara til bílaleigna. Þrátt fyrir það er góður gangur í sölu nýrra bíla sem fara í auknum mæli til einstaklinga og fyrirtækja segir Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.