Fara í efni

Bílar stækka hratt – framkvæmdastjóri BGS ræddi þróunina í Speglinum

Fréttir
Bílar stækka hratt – framkvæmdastjóri BGS ræddi þróunina í Speglinum
Bílar stækka hratt – framkvæmdastjóri BGS ræddi þróunina í Speglinum

Fólksbílar hafa stækkað jafnt og þétt frá aldamótum. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, ræddi þróunina og áhrif hennar í viðtali við Ævar Örn Jósepsson í Speglinum á RÚV.

Tilefni viðtalsins var ný rannsókn evrópsku samtakanna Transport & Environment. Samkvæmt henni hafa fólksbílar að meðaltali lengst um 1,2 sentimetra á ári frá aldamótum og bæði breikkað og hækkað um hálfan sentimetra á ári.

Á aldarfjórðungi jafngildir það um 30 sentimetra aukningu í lengd og 12–13 sentimetra aukningu í breidd og hæð.

Stærri bílar geta veitt ökumönnum og farþegum meira rými og endurspegla meðal annars breyttar þarfir og óskir kaupenda. Þróunin hefur þó jafnframt áhrif á orkunotkun, umferðaröryggi, vegakerfið og nýtingu bílastæða. Þá hefur aukin útbreiðsla sportjeppa og annarra stærri fólksbíla verið áberandi á undanförnum árum.

Í umfjöllun Spegilsins eru þessar breytingar settar í samhengi við þróun bílamarkaðarins og þær fjölbreyttu kröfur sem nú eru gerðar til ökutækja.

Hlusta má á viðtalið í Speglinum á vef RÚV.