Fara í efni

Bílaleigubílum fjölgar í takt við fjölgun ferðamanna

Fréttir

Frétt af visir.is

Bílaleigubílum hér á landi fjölgaði um 26 prósent á milli áranna 2014 og 2015, sem er talsvert umfram það sem spáð hafði verið. Flotinn stækkar þó í takt við fjölgun ferðamanna, sem var um 30 prósent á sama tímabili.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um íslenska ferðaþjónustu. Þar segir meðal ananrs að fjölgun bílaleigubíla hafi verið tiltölulega lítil á milli áranna 2013 og 2014 en hafi tekið stökk árin 2014 til 2015. Stækkunar- og endurnýjunarþörfin hafi á þeim tímapunkti verið orðin það mikil að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í miklar fjárfestingar. Þá segir jafnframt að markaður fyrir leigu til innlendra aðila fari stækkandi, þá einna helst í langtímaleigu.

Þá hefur sú jákvæða þróun átt sér stað síðustu ár að ferðamannastraumurinn er orðinn jafnari yfir allt árið, og þar með útleiga á bílum yfir vetrarmánuðina orðin meiri miðað við það sem áður var. Því sé tekjustreymi í bílaleigugeiranum heilt yfir orðið jafnara og eðlilegra á ársgrundvelli. 

Fjölgri virkra rekstraraðila hefur aukist talsvert á milli ára, en útgefin starfsleyfi til bílareksturs voru 51 árið 2013, en á árinu 2014 voru þau orðin 151 og því hafði orðið nálægt þreföldun í fjölda á þessu tímabili. Það er nánast fullkomlega samsvarandi fjölgun ferðamanna á sama tímabili, því fjöldi þeirra hafði einnig um það bil þrefaldast. Hins vegar stóð fjöldi starfsleyfa í stað á milli 2014 og 2015 og fjölgaði aðeins um einn, úr 151 í 152. Þannig hafði fjöldi leyfishafa verið nánast sá sami frá árinu 2013 þegar þeir voru 149 talsins.

Spár Íslandsbanka benda til þess að virkum rekstraraðilum muni fjölga eitthvað á árinu. 
Skýrsluna í heild má lesa hér.

http://www.visir.is/bilaleigubilum-fjolgar-i-takt-vid-fjolgun-ferdamanna/article/2016160228735